Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 22 —
hefir hún síðan farið að storkna, að minnsta kosti
yfirborðið, og ummyndazt svo í fastan líkama. Þá
getum vér fyrst farið að tala með nokkurri vissu
um jarðarinnar útlit, þó margt hafi umbreytzt
síð-an, því frumfjöllin standa enn, eins og menjar frá
hinni fornu öld, þegar ekkert jarðneskt auga sá
hvað gerðist á vorum hnetti.
Með þráfaldlegum rannsóknum hafa menn
komizt að raun um, að jörðin hefir síðan þolað
margar og stórkostlegar umbyltingar, ýmist af eldi
og landskjálftum eða stórflóðum og sjávargangi,
og það svo óttalegum, að allt líf á jörðu hefir þá
stundum fyrirfarizt. Til að létta sér yfirlit þessara
umbyltinga, hafa menn skipt ævi jarðarinnar í
fjögur tímabil, sem hvert um sig hafa sín einkenni.
Fyrsta tímabilið hafa menn kallað eldöld, þá
flóð-öld, þá flóð- og eld-öld eða umbyltinga-öld, og fjórða
tímabilið hina umbreyttu öld. Nú skal stuttlega skýrt
frá hverri öld fyrir sig, og hennar sérlegustu
ein-kennum.
1. Eldöldin.
Svo nefnist fyrsta tímabilið, af því viðburðir
þeir og umbyltingar, sem þá hafa orðið á jörðunni,
virðast einkum hafa orsakazt af eldsumbrotum
inn-an í henni, og ofurmegni hitans í loftinu. Þegar
jörðin var að storkna, og elzta skorpan að myndast
á hennar yfirborði, hafa umbrotin verið meiri en
svo í náttúrunni, og hitinn einkum svo fjarskalegur,
að ekki er von, að lífið gæti þá farið að kvikna og
geta dafnandi verur, sem þurfa margs við, og meðal
annars friðar og næðis til að geta lifnað og
viðhald-izt. I elztu fjöllunum finnast heldur öngvar leifar
af dýrum né aldinum, en málmar og steinar finn-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>