- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
26

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 26 —

asymmetricorum). Sæ-liljurnar birtast þegar í
fjalla-kalkinu í stóreflis-dyngjum, ogein tegund þeirra, sem
nefnist fimm-hæringur (Pentakrinit), hefir haldizt
við líði, og lifir enn í sjónum. Hitt er samt
merki-legra, að þarna koma fiskarnir í ljós allt í einu, áður
en menn áttu von á þeim, og sjá menn víða menjar
þeirra í kalkhellum og bik-runnu mergils-hellunum
frá byrjun flóðaldarinnar.

Það lítur út, eins og veðrið hafi um þessar
mund-ir verið eins alls staðar á jörðunni, hvað ólík sem
himinbeltin voru; því hvar sem menn leita, eru
stein-gjörvingarnir eins, og í samkynjuðum jarðarlögum
eru alls staðar sömu tegundir dýra og jurta. En svo
lítur út, sem munur hafi verið á vatninu í sjónum,
og hafi þar af komið mismunur tegundanna.

Þrjú lög af sandsteini hafa myndazt á
flóðöld-inni. Fyrst er rcmðulr sandsteinn, og fylgir honum
kalktegund, er menn kalla „gips", og er það
eldkynj-að, því bæði er í því kolasýra, og þar að auki sjáum
vér, að það á skylt við innviðu jarðarinnar, því
gips-fjöll eiga fremur öðrum þátt fyrir landskjálfta. —
Eftir rauða sandsteininn kemur annar flekkóttur.
Öngva steingjörvinga er að finna í þessu lagi, og
þekk-ist það á skeljakalki, sem vant er að fylgja því.
Loks-ins kemur þriðja lagið, og er bágt að þekkja það frá
hinu, þar sem kalkið vantar á milli þeirra.

Því næst koma tvö kalklög, hvert öðru meira, og
eru náskyld. Þessar tegundir nefnast skeljakalk
(lías-kalk) og Júra-kalk, og eru víða innan um þau
hellulög og sandsteinn. Þar sem svo er ástatt, má
oftast finna koladrög; en þau eru miklu minni en frá
eldöldinni, og kolin ekki eins góð; veldur því
eink-um umbreytingin, sem orðið hefir á loftslagi og
jarð-vegi um aldamótin, því tré þau og grös, sem kolin

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0034.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free