- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
190

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 190 —

hvor der da var Tingsted, men nu er samme Gaard
den næstøverste i Gnúpverjahreppen, og i det hele
taget har aldrig siden dette ødelæggende Udbrud,.
som har været ledsaget af mægtige Lavastrømme,
nogen Gaard været genopbygget i disse ødelagte
Strækninger.

UM LANDSKJÁLFTA Á ÍSLANDI.

Nú leika ekki framar nein tvimæli á því meðal
jarðfróðra manna, að landskjálftar séu náskyldir þeim
atburðum, er vér köllum eldsuppkomu og eldgos eður
jarðeld. Ekki er samt enn liðin meir en hálf önnur öld
síðan menn hafa fyrir alvöru farið að taka eftir slikut
sambandi; og af því rís aftur, að allar fornar
frá-sagnir um landskjálfta skýra mjög ógjörla frá, hver
áhrif þeir hafi haft á myndun yfirborðs jarðar vorrar,
t. a. m. hvar land hafi sigið niður eður jarðvegur
hafizt, sjávarmál breytt sér og lönd aukizt eður
kom-izt undir sjó og annað þess háttar. Þær låta sér
nægja með að telja upp, hvað mörg þorp eður bæir
hafi fallið það og það sinn, hvað margir menn hafi
farizt og mikið tjón orðið á fjármunum. Og svo er
enn um allmargar frásagnir slikra atburða nú á
dög-um, að mikið vantar á, að nógu fróðlega sé af þeim
sagt til framfara jarðfræðinni.

íslendingar hafa haft næga reynslu fyrir sér til
að vita fyrir löngu að landskjálftar eiga náskylt við
jarðeld, því varla hefir nokkurn tima orðið mikil
elds-uppkoma svo ekki hafi landskjálftar verið henni
sam-fara, að minnsta kosti í grennd við eldinn og stund-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0202.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free