Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 191 —
um miklu meiri langar leiðir þaðan. Það er og ekki
efunarmál, að það hvort tveggja á sér ena sömu röt
í öflum náttúrunnar djúpt í jörðu. Það er sannreynt,
að á meðal eldfjalla eður og í héruðum í grennd við
þau eru landskjálftar tíðastir, og á undan hverju gosi
eru vanar að koma hræringar, og linna oftlega aftur
jafnskjótt og eldurinn er kominn upp. Sjálfsagt er,
að landskjálftar koma oft, þótt hvergi verði af
elds-uppkomu, er eins fyrir því mun þó leiða beinlínis af
jarðeldsumróti djúpt undir löndum, sem ekki nær að
brjóta sér veg til yfirborðs hnattar vors.
Það er almennt mál manna, að breytingar verði
á loftslagi undan landskjálftum, óregla í veðráttufari,,
svo sem langvinnir þurkar eður og regndembur í
þeim löndum, sem aldrei er vön að koma skúr um
það leyti, þrálát dauðalogn með stöku vindköstum,
roði á sólu, framkoma kveikjulofts og rafurmagnsefnis
af jörðu og enn fleira. En langvaranlegar rannsóknir
á Sikiley, þar sem landskjálftar eru mjög tíðir, hafa
samt ekki getað sýnt né sannað, að slíkt samband
millum loftslags og landskjálfta sé til í raun ogveru.
Aftur hefir þráfaldlega verið tekið eftir því, að
land-skjálftar hafa töluverð áhrif á segulnálina, jafnvel
þótt þeir séu vægir, og líkindi eru til, að eldhnettir
þeir og blossar úr jörðu, sem getið er að oft verði
samfara landskjálftum, séu framkomnir af
rafurmagn-inu. Svo er og um þann atburð, er sumir menn finna
á sér landskjálfta fyrirfram og fá höfuðsvima og verða
sem sjósjúkir, en mörg dýrakyn óróast og fara með
ýmsum látum, að óhætt mun vera að eigna þa6
snöggri breytingu á rafurmagni lofthafsins.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>