- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
204

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 204 —

próföstum og prestum á landinu, og erum þess
full-öruggir, að þér auðsýnið félagi voru og oss þá
góðvild, að svara spurningum vorum sem bezt og
greinilegast, að svo miklu leyti sem þær geta átt við
yðar prestsumdæmi, og sjáið ekki í fyrirhöfnina, sem
raunar er töluverð, en lítið heldur á hitt, að félagi
voru er það ómissandi, eigi fymefnd lýsing á íslandi
að verða svo skýr og áreiðanleg, sem vér gjarnan
vildum.

Endist yður ekki hið næsta sumar til að svara
spurningum vorum eins vel og þér mynduð kjósa,
biðjum vér yður að senda oss seinna það, sem á
brestur, og leggjum vér á yðar vald, hvort þér viljið
heldur svara beint áfram hverri spurningu fyrir sig,
eður semja sjálfir lýsingu á prestsumdæmi yðar, og
hafa þá svo mikla hliðsjón af spurningum vorum,
sem við verður komið, en senda oss siðan þessa
lýs-ingu eins fljótt og orðið getur. Og svo þér getið
hér um bil séð, hvernig skipulag bókarinnar muni verða,
og raðað svo niður eftir þvi efninu i sóknarlýsingu
yðar, leyfum vér oss að nefna hin helztu atriði hennar,
í þeirri röð, sem oss finnst þau eigi að verða, og deild
félags vors i Kaupmannahöfn heíir látið sér vel líka.

I.

1. Afstaða og stærð landsins.

2. Landslag (Orografi)

Fjallaskipan, (fjallgarðar, einstök fjöll, hálsar og
heiðar, o. s. frv.).

Héruð og dalir, strandir, nes og eyjar.

Eldfjöll, eldgos, jarðbrunar, hraun.

Um uppkomu og myndun landsins.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0216.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free