- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
209

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 209 —

17. Hvar eru þar hafnir og beztar lendingar; hverjir
eru kostir og ókostir þeirra?

18. Hvar eru þar rastir, boðar, grynningar, rif eða
sker? Er þar útgrynni eður aðdjúpt? Aukast þar
grynningar svo menn viti?

19. Hver eru þar rennandi vötn, stór og smá; hvar
hafa þau upptök sín, hvar renna þau, og í hverja
átt? Eru þau vatnsmikil, ströng, lygn, og hvernig
eru þau yfirferðar? Hverjir eru í þeim fossar, og
hvernig lagaðir (breiðir, háir, beinir)? Hvernig er
farvegi háttað (gljúfur, bakkar, eyrar)? Að hverju
leyti haía þau breytt farvegi sinum svo menn
viti? Hvar eru á þeim helztu góð eða hættuleg
vöð eða brýr, kláfar eða ferjur, og hverjar
lög-ferjur? Hversu djúpar eru þar stórár við sæ, og
hafa menn sögur af, að skipum hafi verið lagt
upp í þær, og hvert?

20. Hver eru þar stöðuvötn, og hve stór, og hvar
liggja þau? Eru í þeim eyjar, og hverjar eru þær
og hversu er þeim háttað?

21. Hverjar eru þar laugar, hverir, ölkeldur, og hvar
og hvernig er þeim háttað?

22. Er þar veðrasamt, og aí hverri átt, og um hvern
tíma árs mest eður minnst?

23. Er þar rigningasamt eður þurkasamt, og aí
hverri átt mest eður minnst, og hvernig hagar
þvi eftir árstímum?

24. Er þar snjóvasamt á vetrum, og af hverri átt
mest eður minnst?

25. Hver átt er þar köldust, og hver heitust?

26. Hvort er þar nokkur regla i veðráttufari, svo
menn hafi tekið eftir — til að mynda, að sama

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0221.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free