Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 210 —
eður likt veður gangi þar ár eftir ár um sama
leyti.
27. Verður þar vart við reiðarþrumur, og hversu oft,
og um hvern tíma árs er það gjarnast, í hvaða
veðri? Hefir þar orðið grand að lofteldi svo
menn viti?
28. Sjást þar nokkrar sérlegar loftsjónir, eður með
hverju móti?
29. Kemur þar hafis, og eftir hverju hafa menn tekið
um aðferð hans og eðli og afleiðingar?
30. Hverjir eru þar bæir (og hjáleigur) eftir bæjaröð?
í hverja átt og hversu langt liggja þeir, hver frá
öðrum? Hvar stendur hver þeirra (t. a. m. undir
hverju fjalli, við hverja á, fjörð eða vik, o. s. frv.)?
Hver er dýrleiki hverrar jarðar? Hvernig eru
landskostir hverrar jarðar (útigangur, heyskapur,
o. s. frv.)? Hverjir eru helztu ókostir jarða? Liggja
þær undir áföllum, og hverjum (skriður, snjóflóð,
landbrot, sandfok o. s. frv.)? Að hve miklu leyti
vita menn til, þær hafi gengið af sér eður batnað?
31. Hverjir bæir eiga þar selstöður, og hvar? Hverjar
þeirra eru notaðar, og hversu lengi, hverjar eru
niðurlagðar, og hve nær, og hvers vegna, svo
menn viti?
32. Hvar eru þar afréttarlönd? Eru það almenningar
eður liggja þau undir einstakar jarðir, og hverjar
þá? Hverjar sveitir hafa þar upprekstur? Hverjar
réttir eru þar, og hvar, og hve nær haldnar, og
hvaðan til söttar?
33. Hver er þar veiði til lands og sjávar (selveiði,
alls konar fiskveifti, fuglveiði, hreindýraveiði,
refa-dráp), og hver er veiðiaðferð við hvert um sig?
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>