Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 212 —
46. Hverjar eru þar Krist-fjár-jarðir, fátækrajarðir eður
aðrar jarðir til almennra þarfa? Hver hefir
um-sjón þeirra? Hve mikið er afgjald þeirra, og til
hvers er því varið? Hvernig eru þær tilkomnar,
svo menn viti?
47. Hverjir bæir eru þar reisulegastir og bezt
hús-aðir? Nota menn þar rekavið eður innlenda
skóga-rafta til húsabygginga?
48. Hver eru þar kauptún? Hversu fjölmenn eru þau?
Eru þar mörg kaupmannasetur? Hverjir búa þar
fleiri en kaupmenn? Hver eru þar (eður
annar-staðar í sókninni) hróí handa þiljuskipum, hvar
liggja þau, og hvernig er þeim varið? Hve mörg
eru þar (í kaupstaðnum) steinhús, timburhús,
torf-hús? Hver eru þar fiskitökuhús eða önnur hús
utan kaupstaðar, er liggja undir kaupstaðinn?
49. Hverjir eru þar bjargræðisvegir? Hverjir af þeim
eru arðsamastir, og hverjir mest ræktir?
50. Eru þar hafðar færikvíar? Eru kýr hafðar inni á
sumrum, eða hestar traðaðir? Eru þar höfð
beit-arhús á vetrum? Tiðkast þar borgir eður önnur
fjárhús?
51. Hvernig er þar stunduð almenn jarðrækt,
tún-garðahleðsla, túnasléttun, greftir til vatnsafleiðinga,
skriðugarða-hleðsla o. s. frv.?
52. Hvernig er þar stunduð kálgarðarækt, kartöflur
eður jarðepli?
53. Hvað er þar haft til eldsneytis?
54. Er þar nautfé eður sauðfé, svo menn viti, af
út-lendu kyni, og hversu arðsamt að tiltölu við hið
innlenda?
55. Hvernig hagar þar allri vinnu, inni við og úti
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>