- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
213

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 213 —

við? Hver er þar innivinna á vetrum og hver
útivinna? í hverri viku sumars er sláttur vanur
að byrja og enda?

56. Hverjar íþróttir eru þar tíðkanlegar (sund, skot,
skíðaferð, skautaferð, glímur o. s. frv.)? Hverjar
mest tíðkaðar eður af hversu mörgum o. s. frv.

57. Eru þar leikin hljóðfæri, og hver og af hve
mörgum? Þekkja menn þar nótnasöng?

58. Hvað hafa menn helzt til skemmtunar?

59. Hve margir eru þar skrifandi?

60. Aldur og kyn þeirra, sem ekki eru skrifandi?

61. Hvernig er siðferði þar varið? í hverju er því
helzt ábótavant? Fer því aftur eða fram?

62. Fer trúrækni þar aftur eða fram, eða þekkingu
trúarbragðanna?

63. Eru þar læknar settir af konungi, eður aðrir, og
þá hverjir, er leyfi hafa til lækninga?

64. Eru þar yfirheyrðar yfirsetukonur, eða aðrar, er
leyfi hafa til þeirrar iðnar?

65. Hverjir sjukdómar eru þar almennastir? Eru þar
nokkrir sérlegir sjúkdómar (t. a. m. ginklofi,
holds-veiki) og hverjir?

66. Hefir almúgi þar nokkur innlend meðöl við
sjúk-dómum, og hver (t. a. m. lækningajurtir,
jarð-böð, sjávarböð, laugar o. s. frv.)?

67. Er kvikfénaður þar undirorpinn nokkrum
sérleg-um sjúkdómum? Hafa menn nokkur ráð við þeim,
og hver?

68. Eru þar nokkrar fornleifar, t. a. m. rúnar í hellum
eður á björgum eður hellum, einstakir
rúnastein-ar, eður forn leturskurður eður myndir á
trje-eður málm-smiði, ellegar önnur merkileg fornrit

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0225.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free