Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 221 —
HNATTSTADA ÍSLANDS
OG FORNAR LEIDARVÍSANIR.
Land það, er Hrafna-Flóki kallaði ísland, sem
það hefir síðan heitið, liggur á norðurhveli jarðar,
sunnarlega í hafsbotni þeim hinum mikla, er gengur
inn aí úthafinu til norðausturs millum Grænlands og
Noregs allt að ísum.
Fornmenn kváðu svo á um afstöðu þess, að úr Noregi,
írá Staði, sé 7 dægra sigling í vestur til Horns á íslandi
austan-verðu, en frá Snæfellsnesi, þar sem skemmst er, 4 dægra haf
í vestur til Grænlands; en ef siglt er úr Björgvin rétt í vestur
til Hvarfs á Grænlandi, þá muni siglt vera tylft fyrir sunnan
ísland. Af Hernum í Noregi segja þeir sigla skuli jafnan í
vestur til Hvarfs á Grænlandi, og sé siglt fyrir norðan
Hjalt-land, svo, að því að eins sjái það, að allgóð sé sjávarsýn, en
fyrir sunnan Færeyjar, svo, að sjór sé í miðjum hlíðum, en
svo fyrir sunnan ísland, að þeir hafi af fugl og hval. — Frá
Reykjanesi á sunnanverðu íslandi telja þeir 5 dægra haf til
Jölduhlaups á írlandi í suður, en frá Langanesi á
norðan-verðu íslandi 4 dægra haf norður til Svalbarða í Hafsbotni,
en dægursigling til óbyggða á Grænlandi úr Kolbeinsey [í]
norður.
KAFLAR ÚR 2 ÞÁTTUM TIL »ÍSLANDS-LÝSINGAR«.
I.
ÚR ÞÆTTI UM VATNSFÖLL.
A. VATNSFÖLL í MÚLAÞINGI.
Fossá er litil spræna á sóknamótum millum
Sauðaness- og Skeggjastaða-sókna; hún rennur mót
austri eftir Fossdal fyrir norðan Gunnólfsvikurfjall
og steypist fram af bjargi i sjó; þar er hár foss og
beinn.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>