Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 222 —
Geysirófa er og lítil á; hún hefir upptök sín í
svo-nefndum Skörðum og Vatnadal og fellur móti
austri í mörgum krókum í norðanverðan Finnafjörð.
Finnafjarðará fellur móti norðaustri í
Finnafjarð-ar-botn; nokkur hluti hennar kemur úr Krókavatni á
Fellsheiði og heitir þá Krókavatnsá, en hitt
vatns-magn hennar kemur framan af Hallgilsstaðaheiði
sunn-anverðri. — Þetta er raunar lítil á með grjótfarvegi,
en verður þó ill-reið í vatnavöxtum; vöð eru á henni
við sjó og á veginum á Hallgilsstaðaheiði.
Saurbœjará, lítil á, kemur úr Saurbæjarvatni og
rennur móti norðaustri í sunnanverðan Finnafjörð.
Miðfjardará hefir upptök sín á
Vopnafjarðaraf-réttum, þar sem heita Miðfjarðarárdrög; hún rennur
víðast út-undir byggð í djúpu gili og fellur móti
norðaustri í Miðfjarðarbotn. Hún er víðast ströng og
grýtt, og oftlega óreið mikinn hluta sumars. Nokkur
vöð eru á henni undan Miðíjarðarseli og þar fyrir
utan, og lögferja undan Miöfirði. Tveir fossar, beinir,
eru í henni og heita Sniðfoss og Fálkafoss.
Kuerká sprettur upp norðan-undir Arnarfjöllum
og fellur í Miðfjarðará milluin Miðfjaröarness-sels og
Kverkártungu; þegar ofan-eftir dregur, fellur hún í
djúpu gili og er þess vegna í 11 yfirferðar.
Hölkná kemur úr nokkrum smátjörnum, er heita
Hölknárlón, norðan-undir fjallinu Hágangi; hún fellur
og móti norðaustri, sumstaðar í nokkrum gljúfrum,
og kemur til sjávar í sunnanverðan Miðfjörð, millum
bæjanna Miðfjarðar og Djúpa-lækjar. Rauðhólavað er
hið almennasta og óhætt, nema í vatnavöxtum; þá
er betra vað nokkru neðar.
Djúpi-lœkur er lítið eitt framar; hann kemur þar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>