Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 224 —
sveitamótum millum Viðvíkur og Strandarhafnar fram
aí bergi í sjó niður.
Selá rennur mót austri út Selárdal og kemur til
sjávar í norðanverðan Núpsílóa nokkuð innar en fyrir
miðri norðvesturströnd Vopnafjarðar, það er allmikil
á, bæði ströng og stórgrýtt.
Sunnar og innar er Vesturá, er rennur um
Vest-urárdal norðaustur í Skógalón; er það heldur lítil á
og ekki ströng. í henni er nokkur silungsveiði.
Hofsá kemur af Tunguheiði og rennur út
Foss-dal og Hoísárdal, norðaustur í innanverðan botn
Vopnafjarðar; er það allmikil á, en ekki ströng né
stórgrýtt. í hana renna sunnan af fjöllum þessar
smáár: Litlá, Selá, Egilssiaðaá, Þuerá, Sunnudalsá
og Tunquá, er aðskilur Smjörvatnsheiði og
Tungu-heiði. Að vestanverðu renna í hana Þuriðará og
Rangá.
Út-við sjó er Hofsá óreið fyrir dýptar sakir og er
þar á henni lögferja frá Syðri-vík, og fleiri ferjur eru
þar hafðar, til að mynda á Hofi. Yzta vað á Hofsá
er ekki langt frá ferjustaðnum og heitir
Pálmagarðs-vað; er það bæði breitt og djúpt, þegar hásjávað
er, en gott undir. Foss er í ánni hjá bænum Fossi,
og er mælt, að lax leggist undir hann, en ekki
verð-ur að því komizt að veiða hann þar. Aftur er nokkur
silungsveiði víða í ánni. Farvegur hennar er breiður
og sléttur, þegar út-eftir dregur, og á vorum gengur
hún nálega yfir allt sléttlendi kringum sig.
Gljúfrá kemur ofan af Vindfellsfjalli og rennur
til norðurs i innanverðan Vopnafjörð, á
suðurströnd-inni. Hún fellur, þegar niður-eftir dregur, i miklu
gili, svo ófært er yfirferðar, nema þar sem vegurinn
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>