Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 234 —
auki er vað á þeim báðum saman niður-frá
Skriðu-klaustri, og verður það ófært í vatnavöxtum.
Fellsá hefir upptök sín suður-á
Sviðinhornahrauns-öræfum og rennur þaðan í norður, austan um Fellið
(Kiðjaíell), fossandi í gljúfragili, og fellur í Kelduá
fyrir utan síðast-nefnt fjall; á henni er hafður kláfur
(dráttur) til [að] koma geldfé yfir Fellið á vorum í
vatnavöxtum.
Gilsá kemur sunnan af fjallgarði þeim, sem liggur
millum Skóganna (Hallormsstaðarsóknar) og
Skrið-dalsins, og rennur norður fjallið ofan í Gilsárdal og
á eyrum eftir dalnum, unz hún fellur fram úr
hon-um í þröngu og djúpu klettagili út í Lagarfljót, rétt
inn-við Fljótsbotninn.
Engin önnur teljandi vötn falla í Lagarfljót að
vestan-fram né að innan úr Fljótsdalnum. En að
austan-fram tekur það við tveim vatnasöfnum úr
Grímsá og Eyvindará, sem nú skal verða sagt.
Öxará rennur úr Öxarvatni, er liggur í
Öxar-hrauni, og rennur út Öxarheiði ofan í Skriðuvatn í
Víðirgröf, sem er innsti hluti Suðurdals, er gengur
inn-af Skriðdal austanvert við Þingmúlafjall. í hana
falla tvær ár, sem heita Yxnagilsår; koma þær báðar af
Breiðdalsheiði og renna til vesturs í Öxará fram á fjalli.
Foruiðará heitir litil á, sem fellur niður af fjalli
innan-til í Skriðuvatn; í henni er einhver hæsti foss
á íslandi.
Vatnsdalsá rennur úr austri eftir Vatnsdal og
fellur einnig í Skriðuvatn.
Múlaá rennur til norðurs úr Skriðuvatni út
.Suðurdal.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>