- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
233

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 233 —

feikna-djúpu klettagili, rétt fyrir innan Bessastaðabæ,
niður á sléttlendið og fram eftir því í Jökulsá.

Allar þessar 6 næsttaldar þverár eru strangar, en
mjög vatnslitlar, nema í stórrigningum eður
snjóaleys-ingum á vordag, og verða því-nær aldrei óreiðar.

Jökulsá í Fljóísdal kemur undan Vatnajökli íyrir
framan Snæfell, rennur fyrir austan það um breiða
sandaura og síðan um grjóteyrar, unz hún fellur út í
Norðurdalinn ofan grunnt gljúfragil, og eftir dalnum
út-fyrir Múlafjall, er skiftir Fljótsdalnum í tvo dali,
Norðurdal og Suðurdal, og kemur þar saman við
Kelduá, sem rennur úr vatni nokkru fram-á
Múla-öræfum, rétt við jökulinn, og er hann þar nýlega
hlaupinn fram í vatnið, svo áin, sem fyrrum var
bergvatn, er nú jökulvatnsblandin, þegar líður fram
á sumar. Hún rennur fyrst á grjóteyrum norður eftir
Múlaöræfum, þangað til hún fellur ofan af þeim um
gljúfragil, með mörgum smáfossum, út í Suðurdalinn,
og eftir honum, þar til hún mætir Jökulsá, sem fyr
segir, skammt fyrir utan Múlahornið. Renna þær úr því
saman í mörgum kvíslum út-eftir Fljótsdalnum og
falla í Lagarfljótsbotn á breiðum leirum skammt fyrir
framan Brekku, og er úr þeim báðum ám
aðalvatns-megnið í fljótinu. Þær eru báðar vatnsmiklar og
straumharðar, og illar yfirferðar langt fram á sumar,
nema á ferjum. Þær renna á sléttum eyrum eftir
dölunum, þangað til þær koma saman, en úr því á
söndum og leirum út í fljótið og eru þar víða fullar
af sandbleytu. Á Jökulsánni er bezt vað, þegar hún
er mikil, rétt fyrir utan Múlahornið, en Kelduáin
breytir vöðum sínum á hverju ári; þó er stöðugt vað
undan Víðivöllum ytri, kallað Langa-brot. Hér að

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0245.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free