Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 236 —
Grjótá, Beiná og Höfðaá; koma nokkrir þessara lækja
saman í svo-kallaða Kaldá, og falla öll þessi
smá-vötn í Grímsá, nema Höfðaá ein, sem er yzt og
fellur í Lagarfljót.
Eyuindará kemur úr svo-kölluðum
Reyðarfjarðar-dölum, sem liggja til suð-austurs, inn millum
Ketil-staðaháls og Gagnheiðar, og fellur hún i Lagarfljót
millum Vallaness og Eiðasókna. Hún verður úr
Tungu-ám tueim, er koma niður af fjallinu millum Héraðs
og Eskifjarðar og renna eftir Tungudölum, og úr
Slenju, sem kemur úr Slenjudal, er liggur beint í
austur til Mjóafjarðarheiðar. Heitir dalurinn úr þvi
Eyvindardalur og áin Eyvindará, og falla þar enn i
hana Grjótár tvœr, báðar niður af Gagnheiði, og eru
það litlar þverár.
Miðhúsaá fellur enn i Eyvindará, næstum beint
af fjalli ofan, þar sem mætast Hálsar og Gagnheiði;
Þverá þessi er vatnslítil, nema í leysingum á vordag,
og er í henni foss einn upp-i hliðinni, kallaður
Gufufoss.
Fleiri vötn en nú hafa verið nefnd, falla ekki í
Lagarfljót, og eru það alls 38 ár með 42 nöfnum.
Selfljótið er, sem áður var sagt, hið austasta,
sem fellur til sjávar á Héraðs-söndum. Það rennur
nærfellt samsiða Lagarfljóti út eftir Hjaltastaða-sókn
og skiftir henni í tvo hluti, Austur- og Vestur-(Norður)r
byggð. Það verður af Núpsá og Gilsá, og er fyrst
kallað Selfljót þar sem þær koma saman, og rennur
í sjó undir Ósfjalli; það kallar Landnáma Una-ós.
Það er alls staðar lygnt og með linum, svörtum
sand-botni, og er það víða riðið á vöðum; þó eru til á
því ferjur. — Allar ár, sem falla í Selfljótið, eru þver-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>