- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
237

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 237 —

ár og koma úr fjallgarði þeim, sem gengur út fyrir
austan Fljótsdalshérað, írá suðvestri til norðausturs,
og renna þær skáhallt ofan fjöllin til norðvesturs
fram í fljótið, sem nú skal verða sagt.

Gilsá er innst; hún rennur úr Vestdalsvatni,
sem liggur efst upp-á fjalli, nokkuð utar en Miðhúsa-á,
og eftir Gilsárdal ofan, fyrir sunnan Gilsárteig, og svo
út á við í Selfljót. Tveir fossar eru í henni og heitir
hinn neðri Nikuríoss. Hún er vatnsmikil og ströng,
þegar hún er í vexti.

Núpsá hefir upptök sín á Tóarfjallvegi og fellur
ofan-eftir Hálsum, fyrir utan Hjartarstaði, niður í
sunnan-vert Selfljót. Foss er í henni fyrir ofan
Hjartar-staði, sem heitir Svarti-foss. Hún er ekki vatnsmikil
með jafnaði.

Hurðarbaksá sprettur upp upp-á fjalli, skammt
fyrir utan Núpsá, og fellur fyrst niður-eftir Hálsum,
og þvi næst skáhallt út og ofan í Selfljót, innarlega
i Hjaltastaða-þinghá.

Staðará sprettur upp eíst i búfjárhögum
niður-af Botnsdalsfjalli og rennur skáhallt ut og ofan i
Selfljöt.

Hriså og Vallarå hafa og upptök sín í
búfjár-högum, fyrir neðan Bjarglandså, og koma saman
neðarlega i byggðinni; heita þær úr því Gerðisá, er
rennur i Selfljöt. — Allar þessar þverár eru lítil vötn.

Hölknå hefir upptök sin i Botnsdal og fellur i
Bjarglandså, neðan-til við Hraundalsmynni.

Bjarglandså hefir upptök sin undir
Hraundals-varpi, rennur ofan endilangan dalinn og takmarkar
Sandbrekku-afrétt allt að neðan, og fellur seinast i
Selfljöt; hún er stærst vatnsfall i Hjaltastaða-þingá,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0249.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free