- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
238

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 238 —

að fráteknu Selfljóti sjálfu, og er bæði straumhörð og
stórgrýtt, og ill yfirferðar; þó eru víða vöð á henni,
en ferjum verður ekki við komið, sökum straums og
stórgrýtis. í gljúfri einu niður-við byggðina er
tré-brú á henni, gjörð á líkan hátt og brúin á Jökulsá,
en miklum mun minni og veikari.

Sandá rennur úr Sandadal ofan þvera
Sanda-brekku-afrétt; hún fellur að utanverðu í Bjarglandsá.

Jökulsá, er hið yzta vatnsfall austan fram í
Hér-aðinu; hún rennur úr Eiríksdal ofan millum
Hrafna-bjarga- og Sandabrekku-afrétta, fram í Selfljót; vatnið
í henni er jökulblandið bergvatn. — Alls eru það 10
ár, sem falla í Selfljótið.

Njarðuikurá er lítið vatn; hún verður til úr
lækj-um, sem falla hingað og þangað úr fjöllunum í
Njarð-vík, og er ekki meira en rúmlega í hné, þar sem
hún fellur til sjávar, þegar hún er ekki í vexti.

Fjarðará fellur i innanverðan Borgarfjörð, og
verður einnig úr mörgum fjall-lækjum; hún er bæði
straumhörð og býsna-vatnsmikil og getur orðið ófær
í vatnavöxtum; bezt vað er á henni undan
Desjar-mýri. Sagt er, að í fornöld hafi skipum verið lagt í
Fjarðarármynni; heitir þar Jökulsárhöfn, og sér enn
tóft við ána, sem mælt er að sé hróf. Nú er árósinn
10 til 12 feta djúpur með stórstraumsflóði.

Brúnavikurá fellur ofan af fjöllum til norðausturs
í innanverða Brúnavík.

Breiduvíkurá kemur úr Gæsavötnum fyrir innan
Breiðuvíkurstafn og rennur til austurs i innanverða
vikina, á sóknamótum millum Desjarmýrar- og
Húsa-vikur-sókna; hún er einart mikil i rigningum, og er

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0250.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free