Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 241 —
Vestdalsá rennur í austur til sjávar, eftir
Vest-dal, millum Vestdalsafréttar og Bjólfsfjalls; í hana
falla 2 litlar þverár.
Stafdalsá rennur eftir Stafdal, millum Bjólfsfjalls
og Stafdalsfells í Fjarðará, sem hefir upptök sín á
Gagnheiði og rennur til norðausturs eftir Fjarðardal
í fjarðarbotninn.
b. Sunnanfram:
Sörlastaðaá rennur milli norðurs og norðausturs
eftir Sörlastaða- eða Hánefsstaða-dal, sem liggur milli
Strandarfjalls og Snjöfjalls; hún fellur í gljúfragili
þegar að sjó dregur, og bæði í henni og
Vestdals-og Fjarðar-ám eru nokkrir stórfossar, hér um bil 6 til
10 faðma háir, er falla fram af þverhnýptum björgum.
Austdalsá fellur í sömu átt eftir Austdal, millum
fjallanna Flanna og Sandfells.
Sandár tvær, smáar, eru yztar og falla ofan í sjó
millum Sandfells og Skálanessbjargs.
í Mjóafirði eru þessar ár:
Afréttar-ár tvær eru smálækir yzt utan í
fjöllun-um, norðan-fram á svo-kallaðri Dalsafrétt.
Dala-á rennur til austurs í sjó fram eftir
Dala-dal millum Flatafjalls og Akurfells; hún er
vatns-mikil og ill yfirferðar.
Steinnessdalsá rennur til suðausturs í sjó fram
eftir Steinnessdal millum Akurfells og Tóarfjalls; hún
er ekki mjög mikil, en því nær vaðlaus.
Hofsá kemur úr Hofsdal, millum Goðatinds og
Rimatinds, og rennur að mestu leyti í gljúfragili; er
þar í henni hár foss, sem steypist fram af þvernhýptu
bjargi. Hún er ströng en ekki vatnsmikil.
16
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>