- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
244

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 244 —

Njöruadalsá kemur úr Njörvadal og fellur, skammt
fyrir utan Seljateig, í Sléttuá, sem fellur í sjó í miðjan
Reyðarfjarðarbotn fyrir neðan Sléttu; hún er
megin-áin í Reyðarfirði og dregst saman úr mörgum smáám
úr inndölunum sem nú skal telja:

Fagradalsá rennur eftir Fagradal og niður í
byggðina fyrir innan Grænafell; í henni er hár foss
þar sem hún fellur fram úr dalnum; Hrútá kemur úr
fjöllunum vestan við Fagradal og rennur þar í
Fagra-dalsá; Hjálpleysuá kemur úr dalnum Hjálpleysu og
rennur til norðurs i Fagradalså; Áreyjará kemur af
Þórdals- (Jórudals)-heiði og rennur einnig i
Fagradalså skammt fyrir neðan Áreyjarbæ. Stuðlaá sprettur
upp á svo-kölluðu Djúpadalsvarpi, með býsna-stórum
fossi skammt frá uppsprettunni, rennur siðan eftir
Skógadal og út eyrarnar neðan-við Stuðla, þar til
hún kemur saman við Fagradalsá. Grjótá eður
Hjálma-dalså kemur úr Hjálmadal, sem liggur upp á fjöllin
sunnan fram fyrir ofan Stuðla, og fellur innan-við
bæinn í Stuðlaá. Úr öllum þessum ám og enn
nokkr-um lækjum verður Sléttuä sem fyr var sagt.
Sunnan-fram i Reyðarfirði er innst
Fossá, er kemur úr Fossárdal hjá Sléttu, með
einum fossi bröttum og háum; þá Hrútá úr
Hrútár-dal; rennur hjá Borgargerði; þá Holtastaðaá, er
kemur úr innri Jökulbotnum, og Miðstrandará, úr ytri
Jökulbotnum, og Eyrará, sem kemur úr Eyrardal og
fellur í fjörðinn skammt fyrir utan Eyrarbæ.
Allt litlar þverár með smáfossum.
í Fáskrúðsfirði eru þessar ár og lækir
nafnkend-astir. Yzt að norðan-fram er:

Hrútá, sem fellur undan Spararfjalli.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0256.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free