- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
248

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 248 —

mynnið byrjar gil að henni, sem liggur niður eftir
bröttu fjalli, og fellur áin eftir því í mörgum fossum;
er hinn stærsti þeirra hár lausafoss, framt að tvítugur
á hæð; hún rennur í Stöðvará sem fyr segir.

Gaddsá kemur úr Gaddsárdal og fellur í austur,.
beint niður í fjörðinn.

Toftá kemur úr Toftárdal, og fellur í sömu stefnu
ofan í fjörðinn; að henni er ekkert gil, utan lítið eitt
í dalsbrúninni. Hún er yzt.

í Breiðdal eru þessar ár:

Breiðdalsá kemur úr litlu stöðuvatni á
Breiðdals-heiði og rennur eftir endilöngum Suðurdal í sjó fram.

Dalsá kemur niður af Stafnsheiði og rennur út
Norðurdal, þar til hún kemur saman-við Tinnudalsá,
þverá nokkura, sem hefir upptök sín á Tinnudal;;
renna þær síðan saman og heita þá enn Tinnudalsá,.
og ofan í Breiðdalsá fyrir utan Kleif. Verður
Breið-dalsá úr því stórvatn og oftlega ófær í rigningum.
og snjóaleysingum; því auk þess, sem nú var talið,
lenda í henni öll smávötn úr allri sveitinni, og eru
það einkum margar þverár, sem nú skal telja eftir
röð, og eru allar kenndar við þverdali þá og
dal-verpi, sem þær koma úr.

Norðan-fram er yzt

Snœhvammsdalsá; þá Fannár tvær, ytri og innri;
þá er komið að Tinnudalsá, sem fyr var nefnd; þá
Gilsá, úr Gilsárdal; þá Suínadalsá; þá Hundadalsá^
innst í Norðurdal.

Sunnan-fram; innst

Flögudalsá; þá Skriðudalsá; þá Fossdalsá; þá
Fagra-dals-á; þá Skamma-dals-á; þá Grunna-dals-á;
þá Djúpa-dals-á; þá Stutta-dals-á og Krossdals-á yzt

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0260.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free