Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 247 —
hún aftur niður af 10—12 faðma háum og breiðum
fossi og rennur síðan eftir miklum urðar- og
stein-katla-farvegi ofan á sléttlendi, og fellur þar í
Stöðv-ará, sem heitir Þverárnes.
Stöðuará er hið mesta vatnsfall innfjarðar og má
þó heita smávatn; hún hefir upptök sín í
stafnseggj-um fjarðardalsins og rennur langt fram eftir honum
í lágu og þröngu kletta[gili] og síðan á stórgrýttum
eyrum, og fyrst i einu lagi fram undir Stöðvardal;
breikka þar eyrarnar og áin dreifir sér út i fleiri
kvislar austur á við, allt fram-undir Þverárnesið; fer
hún þar aftur að draga sig saman i einn farveg, er
síðan tekur stefnu sina suðvestur á við, undir rætur
Vesturfjallanna, og þaðan í ýmsum krókum fram að
vesturenda Sandrifs þess, sem þar liggur fram-við
sjó-inn og er áfast við Suðurfjallið; rennur hún svo úr
því austur með sandrifi þessu innanverðu og loksins
út um ós einn í fjarðarbotninn, austan-til á
sand-inum. Hún er oftast nær vatnslitil; þó getur hún
vaxið svo hún verði ófær. Hún er almennast, þegar
lágsjávað er, riðin á svo-kölluðum leirum, þar sem
hún fellur fram með sandinum; en með flóði verður
að riða hana innar á svo nefndu fossvaði, skammt
fyrir innan það, sem Fossá fellur í hana; en sé áin
í vexti, verður þetta vað fljótt ófært og þá er bezta
vaðið undan Stöð, skammt fyrir utan
Þverárness-odda; er þar á henni þrautavað á eyrunum, og sé
hún ekki þar reið, þá er hún alls staðar ófær.
Sunnan-fram við fjörðinn falla einnig nokkrir
lækir úr fjöllunum, sem kallaðir eru ár og taka nöfn
sín af dölum þeim, sem þær hafa upptök sín i; innzt
er Fossá; hún kemur ofan úr Fossdal, og við dals-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>