Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 250 —
allri utarlega, svo hún er þar víðast hvar með
góð-um vöðum. Ekki eru fossar i henni, nema ef telja
skyldi Einstígsfoss, og neðan-undir honum Axarhylur.
Austan-fram í dalnum falla í Hamarsá ýmsar
smá-þverár og lækir; nefna má:
Langa-gils-á, sem kemur úr dýjalækjum upp-undir
eggjum; hün fellur i gljüfri og er mjög litil, nema i
vatnavöxtum.
Steinå, eins litil og með sama háttar upptökum;
fellur ofan Steinárgil;
Vesturhúsaá kemur úr Vesturhúsadal.
Karfagilså kemur af öræfum og rennur víðast
hvar i miklu gljüfragili, og eins
Leiðagilsá, sem fellur um Leiðagil; draga þær
og báðar saman úr smálækjum á öræfunum.
Sunnan-fram falla i Hamarsá:
Langi-morsi, strangur og heldur vatnsmikill
þver-lækur; hann kemur undan Þrándarjökli og fellur eftir
miklu gili i Hamarsá fyrir utan Melfjall.
Þrándarár, innri og ytri, koma einnig báðar
undan Þrándarjökli; þær eru litil vatnsföll og falla
víða i bratta.
Stangarnesslækur kemur úr stöðuvatni, sem
ligg-ur uppi undir Þrándarjökli og fellur niður um
Stangar-nessgil.
Leirdalså kemur úr dýjalækjum innan-til á
Leir-dal og fellur i gljüfri neðan-til á dalnum, fram úr þvi
í svo-kallað Jökulgil og þaðan niður í Hamarsá.
Snœdalsá er yzt sunnan-fram og kemur úr
Snæ-dal; fellur hún þar sumstaðar í gljüfri og er í henni
foss einn, ekki all-lítill, kallaður Snædalsfoss; hann er
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>