Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 251 —
þverhnýplur og heyrist löngum niður hans langar
leiðir, því áin sjálf er nokkuð vatnsmikil.
í Álftafjörð (syðri) falla:
Geithellaá; hún hefir upptök sín í melum inn-af
Geithellabótum og rennur í austur til suðurs eftir
Geithelladal, fram í botn Álftafjarðar. Efst í dalnum
er víðast hvar gljúfur að henni og foss einn,
kallað-ur Stóri-foss, fyrir utan bæturnar, hár og beinn og
fellur niður-af holbergi. Þegar lengra dregur fram,
rennur hún víðast á sléttum eyrum og eru þar góð
vöð á henni. í hana renna að austanverðu ýms smá
þvervötn; nefna má:
Þrándará, sem rennur niður um Þrándargil fyrir
innan Hlíðarfjall og kemur undan Þrándarjökli.
Sunna kemur einnig úr jöklinum og fellur í
gljúfri niður á milli Sunnutinds og Þrándarheiðar;
held-ur vatnsmikil og jökulblandin."
Langi-morsi heitir og á þessum dal stór
þver-lækur, er kemur úr jöklinum og rennur i gili millum
Sunnutinds og Stóra-foss-brúna niður i Geithellaá.
Hofsá, lítil á, hefir upptök sín í stafni innri
Hofs-bótar og sprettur þar úr jörðu. Rennur hún eftir
Hofs-dal og er þar gljúfur að henni innan-til á dalnum,
en siðan, frá svo-kölluðum Skógum, sléttar eyrar út
til fjarðar. Foss einn er í henni auk annara smærri, er
heitir Stóri-foss, hár og beinn, og klýfur sig að ofan
um þunnan standklett, sem skagar fram úr
bergbrún-inni, þar sem fossinn fellur fram af, og er þar hylur
mikill undir niðri. Nefna má enn i Hofsdal:
Haugalæk; hann kemur úr jörðu á því svæði,
sem kallað er Haugar, austan-megin niður af
Hof-tungu, og rennur á sléttu út í Hofsá. Að honum eru
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>