Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 252 —
fagrir bakkar, vaxnir viði- og birki-runnum, er breiða
yfir hann limar sínar á sumum stöðum.
Flugstaðaá kemur úr Flugstaðadal og rennur i
Hofsá, utan-fram við Hofstungu. Hún sprettur upp i
Sviptungnavarpi og rennur í gljüfri fram um
Afréttar-hausa og þaðan á sléttum eyrum.
Drangå og Grjótá, báðar mjög litlar þverár, falla
í Hofsá, fyrir utan ármótin; þær spretta upp upp-i
fjallaeggjum og renna i giljum, sem við þær eru
kennd.
Selå kemur úr Selár- eður Starmýrar-dal og
fellur mest á sléttum eyrum út i affalla nokkurn,
svo-kallaðan, í Suður-Álftafirðinum; hún er ekki
vatns-mikil, og [er] góð yfirferðar. í hana fellur Heiðaráf
lítið vatn; hún kemur undan vörpunum á Lónsheiði
og rennur þar fyrst um stórgrýttar eyrar; en þar,
sem hün fellur niður af heiðinni, er allmikið, en stutt,
klettagljúfur, kallað Almannagjá; þaðan rennur hún í
klettagili, og seinast um sléttlendi fram til Selár.
Þuottá er lítill lækur austan-fram melhóla þeirra,
sem eru fyrir austan Fauskahlíð, og kemur þar úr
melunum, og rennur á sléttum eyrum út til sjávar.
Þar skírði Þangbrandur.
Haugslœkur kemur úr Haugstjörn, austan-til í
fyr-nefndum melhólum, og rennur einnig til útsjóar.
Fauská, mjög lítil, kemur úr Fauskahlíð og
sprettur þar úr jörðu; hún rennur einnig fram til strandar
og fellur i sjó fyrir sunnan Styrmishöfn. Hún er hið
næsta rennandi vatn, sem talið verði fyrir austan
Eystra-horn.
í Lóni eru þessar ár:
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>