- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
255

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 255 —

straumur, og sagt er ósinn leggi sjaldan á vetrum.
Þar var áður skipalega langt upp-í ósinum, og bundu
festar sínar við Leguklett, er stendur við Legumýri,
austan-til við ósinn, skammt út-frá vatninu. Sagt er
og, að enskir og Hamborgarmenn hafi átt þar búðir
á 16. öld, en Olavius, sem skoðaði ummerki þau, er
þar sjást enn, telur þau líkari skipahrófum en
búða-stæðum. Að innan er ósinn 7 feta djupur um fjöru,
með smásandi í botninum, en þvert fyrir mynni hans
liggur sandrif, og er á því 5 feta djúp um fjöru þar
sem dýpst er, við klett einn háan vestan-til í
ós-mynninu, sem heitir Hvítserkur; tekur sandrif þetta
af allt brim og sjávargang, og þykir sem vera muni
alíhent að leggja þar inn smáskútum, einkum þar
leiðin upp-undir ósinn er hrein, og opin lega fyrir
framan hann, ef biða þarf sjávarfalla.

Fitjá.

Víðidalsá.

Ásgeirsá.

Dalsá.

m

Gljúfrá kemur upp syðst undir Viðidalsfjalli og
rennur austan-undir því til norðurs og síðan í djúpu
gili til útnorðurs, og seinast um eyrar fram í fljótið.
Hún er lítil, en heldur ströng, og eru vöð á henni
niður-á eyrunum og svo á alfaravegi i gilinu milli
Miðhóps og Hólabaks.

Kornsá kemur úr Kornsárvatni á
Grimstungna-heiði og rennur i landnorður fyrir vestan Undirfells-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0267.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free