- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
256

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 256 —

feil og Bæjaháls ofan i Vatnsdal, og fellur þar i
Vatnsdalsá.

Vatnsdalsá er fallegt vatn og straumhægt; hün
rennur til norðurs, eftir endilöngum Vatnsdal, á
slétt-um eyrum eður milli grasbakka, út i Vatnsdalsvatn,
sem almennt er kallað »flóð«. Hún er
býsna-vatns-mikil, en víða góð yfirferðar. Nokkur silungur
geng-ur í hana ur flóðinu. Þegar Vatnsdalsá rennur aftur
fram úr flóðinu, er hún kölluð Kuísl; byrjar hún á
Skriðuvaði og rennur í norður um Þingeyrasókn út
í Húnavatn. Rétt austur af Steinnesi fellur úr henni
síki nokkurt, kallað Þverkuísl, um þverar eyrar,
austur undir brekkur í Axlarkvísl eða Brekkukvísl,
sem kemur úr Hnausatjörn og rennur til útnorðurs í
Húnavatn. Sú breyting hefir orðið á farvegi vatna
þessara, liklegast þegar hin nafnkennda
Skiðastaða-skriða féll 1545, að aðal-vatnsmegnið rann áður með
austurbrekkunum eftir hinu forna árfari, sem
Axlar-kvísl nú fellur um, en nú fellur það fyrir vestan
eyr-arnar eftir Kvíslinni. Á henni er ferja í Steinnesi og
hefir lengi verið, því hvergi er vað á henni frá
Skriðuvatni og út-undir Húnavatn, þar sem heita
Heyvöð, og er hún þar djúp.

Giljá kemur framan af Sauðadal, milli
Vatnsdals-fjalls og Reykjanibbu, og rennur í norður út dalinn
og siðan í útnorður gegnum Giljármela, í þröngu
gili, og loksins í innanvert Húnavatn. Hún er lítil, en
ströng, og vað í henni á miðjum Giljármelum, i
Norð-lingahvammi; það heitir Norðlingavað.

Húnaós fellur til sjávar úr Húnavatni á
Þingeyra-sandi; hann liggur langan veg með ströndinni í
vest-ur-útnorður, og gengur þar fram að austan langur

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0268.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free