- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
269

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 269 —

og smáar, og heita svo: Yzti-Kålkur; hann liggur
yzt-ur og er grasi vaxinn, með lágum klettum umhverfis.
Hvaley, þar skammt upp-af; er einnig klettum gyrt;
með góðu graslendi. Úlfsey og Grunnasundsey eru
báðar áþekkar Hvaley, og allar nokkuð stórar.
Þor-leifshólmi, Kríuhólmi, Ormarshólmi, Þúfuhólmi,
Æð-arsker, Úlfseyjarhólmi og Þrœtusker; eru allir miklu
minni en eyjarnar.

Hörglandshólmar fjórir og Selabryggjuhólmar
tveir liggja einnig undir Búlandsnes, og eru þessir
minnstir. Á öllum þessum hólmum er jarðvegur og
gras.

Berufjarðareyjar eru þrettán að tölu og heita
svo: Hrisey, Austur-Örkney, Suður-Örkney, Hafnarey,
Kiðhólmi, Flathólmi, Langhólmi, Lynghólmí, Melhólmi,
Þeisthólmi, eystri og syðri Hafnareyjarhólmi og
Eg-ilshöfði. Þetta eru allt smáar eyjar og hólmar, og
sprettur gras á þeim öllum, einkum eyjunum. Þeim
fylgir og Þrœlusker og Steinflesjar.

Sandey er býsna-há og mikil ummáls, með
klettum sumstaðar að utan, og góðu graslendi; hún
liggur undir Berunes.

Allar þessar eyjar og hólmar (Búlandsness- og
Berufjarðar-eyjar með Sandey) liggja í einni bendu,
svo ekki verður greinilega sagt, nema með ofmiklum
orðafjölda, hvernig afstaða þeirra er, hvers frá öðru.
Hér um bil V* mílu vestur af þeim liggja

Þuottáreyjar í Hamarsfjarðarmynni; þær eru tólf
að tölu, með smáhólmum íreiknuðum, og heita svo:
Eskilsey liggur innst og snýr þvert fyrir
firðin-•um; hún er býsna-mikil ummáls, með klettum við

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0281.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free