Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 268 —
ummáls; umhverfis hana eru há björg, sumstaðar
næstum því þvergnipt, og heita þau ýmsum
nöfn-ura, t. a. m. Góða-bjarg og Skálmarbjarg, vestan-til
á eynni, Hraínabjörg eystri og syðri, utan-til,
Hellis-bjarg, hæst allra þeirra, norðanmegin, og enn fleiri..
Landslag á eynni er svo, að hún er mjög sett
hól-um og klöppum með mýrlendi og harðvelli á milli,
og er hún að öllu samtöldu ágætlega grösug. Inn í
hana vestanverða gengur vik eitt, mjótt og langt og
hyldjúpt, kallað Selvogur, og er þar skipalega; annar
vogur eins djúpur liggur inn í eyna austanverða;;
hann heitir Áttahringsvogur. Þar heitir og Kirkjuvík,
uían-á eynni, og Hákonarvogur og Trévík að
ofan-fram. Papey er mikil eign og arðsöm; þar er
stór-mikið æðarvarp, töluverður bjargfugl og lundatekja,.
selveði og hagstætt útræði til hákarls- og fiski-veiða.
Kringum aðal-eyna liggja ýmsar smáeyjar:
Arnarey liggur þar fyrir miðju norðurlandi; hún
er mjög há, með björgum umhverfis, og gengur mjótt
og djúpt sund millum eyjanna; í því liggur lítill hólmi,
kallaður Eiði.
Flatey liggur austur-af Arnarey og er mjótt sund
millum þeirra; hún er mikið lægri.
Höfði heitir hólmi einn mjög hár austan-undir
Papey; sundið á milli þeirra [er] mjótt og djúpt.
Huanney heitir litil ey sunnan-fram við
Arnarey. Suður af henni liggur Sauðey, lítill hólmi
innan-og vestan-vert við heimaeyna. Vestur af henni liggur
Arfaklettur, lítill skerhólmi.
Upp-undan Papey, fram-af Búlandsnesi og
Hamars-fjarðarmynni liggur mikill eyjaklasi; þar má fyrst telja
Búlandsnesseyjar. Þær eru ellefu að tölu, stórar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>