- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
272

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 272 —

Skeljarteigur heitir enn hólmi nokkur austan-fram
við Brimilsnes; hann er all-hár og býsna-mikill
um-máls, en lítill er þar jarðvegur og gras.

Allmikið grunnsævi og fjöldi boða og blindskerja
liggja fram og aftur um allt þetta svið; verður því
ekki betur lýst en Jón prestur Bergsson hefir gjört í
lýsingu Hofs- og Háls-sókna, og er það hér um bil á
þessa leið: Fyr en tilgreindir séu boðar og sker fyrir
Búlandsnesi og Álftafjörðum, verður nokkuð að geta
afstöðu djúpanna, þar sem þeir liggja. Þar er að vísu
einlægur flói utanfjarða, en djúpum hans og afstöðu
er misjafnlega háttað, og hafa menn því skift honum
í sérstök svið með ýmsum örnefnum. Sviðið milli
Papeyjar og Búlandsness heitir einu nafni
Papeyjar-álar; sá állinn, sem næstur er Papey, heitir Bardi,
og sá, sem næstur er Búlandsnesseyjum,
Sandeyjar-áll, en sá, sem er í miðið, Skorbeinsáll, og dregur
hann nafn af skeri nokkru, háu, austan-til i álnum,
sem heitir Skorbeinn. Það svið flóans, sem liggur
út-af Þvottáreyjum og sunnanverðum
Búlandsness-eyjum, allt frá Hrómundarey og austur til Skorbeins,
hér um bil V2 viku sjávar út frá landi, kalla menn
Hrómundarbót, og nær hún yfir innanverða
Papeyjar-ála. Fyrir sunnan hana, suður og fram af Skjöldum,
heitir Skjöldudjúp; þar er misdýpi mikið og veit
eng-inn, hve djúpt er. Skjöldudjúp ná hér um bil V2 viku
sjávar út-af Skjöldum, og þar út-af kemur
Papeyjar-djúp, sem nær út-undir svo-kölluð Selsker; það eru
tvö lág og breið sker, hvort hjá öðru, hér um bil V2
viku suður og fram af Papey. Sá hluti djúps þessa,
sem næst liggur Papey að vestanverðu, heitir Iða.
Bæði þessi djúp heita og einu nafni Breið. Vík ein

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0284.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free