Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 273 —
gengur af Berufirði upp að Búlandsnesslandinu,
utan-og austan-vert, sem kölluð er Reyðarskersbót; þar
liggur Reyðarsker, og austur af því lítill boði. Austur
af Teigarhomslandi liggur sker eitt skammt undan
landi, kallað Teigarhlass, og kring um það eru margir
smáboðar, sem ekki verða nafngreindir. Austan-fram
Búlandsnesslands, fyrir innan Gleðivík innri, er klettur
skammt frá landi, kallaður Æðarsteinn, og austur af
honum sker, sem heitir Æðarsteinsribba, og üt og
austur af því er boði, og annar boði norður af því,
báðir skammt þaðan. Austur af Langa-tanga,
utan-fram Djúpa-vogsins, er allstört sker, kallað Svarta-sker,
og vestur úr því Svartaskersribba. Millum hennar og
Langa-tanga liggur Skútusund, og utan-til i því boði,
kallaður’ Mús. Innan-fram af Skútusundi er enn sker,
kallað Selhaas, og kemur það ekki upp nema
með fjöru. Inn og fram af Selhaus liggur
Falkions-hólmi, nokkuð hátt sker, og verður gengið út í
það með stórstraumsfjöru. Skammt frá Svarta-skeri
liggja 2 boðar, annar suður- og hinn vestur-af því.
Flandraraboði liggur út af Fiskimannatanga,
inn-anvert við Djúpa-vog. Skammt þar út-af er önnur
ribba, kölluð Marsríbba, siðan skip með því nafni
strandaði þar 1826, og enn litlu utar í sömu stefnu
Djúpa-ríbba, og því næst Suarta-skers-boði, sá er fyr
var sagt að liggi vestur af skerinu. Þessi röð skerja
og boða liggur þannig í röð, skáhallt fyrir Djúpa-vogi,
frá Fiskimannatanga til Svarta-skers. Austan-til við
Búlandsnessland, gagnvart Reyðarskersbót, er lítill boði
rétt hjá landi. Fram og austur af Búlandsnesseyjum
liggur Hlífólfssker, og skammt austur-af þvi
Hlífólfs-skersboði, og sunnan-fram skersins allt ein boðaröð
18
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>