- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
276

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 276 —

næstum því fast við rifið. Tvö önnur minni sker, sem
heita Þúfur, liggja út- og austur-af Skarfakömbum.
Út-af Styrmishöfn, og skammt frá henni, liggur
Róðr-arsker, og rétt þar viö austan-fram lítill boði.
Spöl-korn þar suður-af er lítið sker, lágt, sem heitir
Flyðru-sker, og suður- og út-af því Fauskaboði. Austur af
Höfninni er lítill hnaggur, sem heitir Flöguhnaggur.
Út-af Krossanesi, sem liggur niður af Hvaldal, fyrir
sunnan Hvalness-skriður, liggja tveir boðar, hvor hjá
öðrum, nefndir Brökur, skammt undan landi. Og aðrir
tveir, hvor hjá öðrum, ef ekki áfastir, liggja spölkorn
suður- og út-af Brökum; þeir heita Huítingar. —
Enn eru til sker innanfjarða, bæði i Hamarsfirði og
Suður-Álftafirði. Miðfjarðarsker liggur utarlega í
Ham-arsfirðinum, á miðri leið; það er ekki uppi, nema um
fjöru. Suður-af mynni Jakobsvogs er og litið sker,
skammt undan, og smá-blindsker kringum það.
Háa-sker liggur út- og austur-af Melrakkanesi, þar sem
Suður-Álftafjörðurinn fer að ganga út í
Hamarsfjörð-inn. Litil sker liggja og undan Melrakkaness-hellum,
skammt frá landi, og fara þau í kaf með flóðum.
Enn er hátt sker á miðjum Suður-Álftafirðinum, skammt
fram-undan Blábjörgum; það heitir Kjöggur. Ýms fleiri
smásker eru og til í þessum fjörðum, er liggja fast
fram-með löndum, bæði innanvert við Blábjörg,
suður-af Hólsnesi, niður-af Hálslandi og viðar.

Utan-fram Starmýrartanga (sandrifs þess hins
mikla, sem liggur fyrir Suður-Álftafirði) er aðgrynni
svo mikið, að hvergi má þar upp lenda fyrir
út-grynni. Eins er við Þvottáreyjar, og aukast þar
grynn-ingarnar ár frá ári, sem fyr var sagt. Á flestum
stöðum öðrum er hér aðdjúpt; þó er hér og hvar

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0288.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free