- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
275

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 275 —

og brýtur oft í tvennu lagi; sá í miðið heitir
Eystrí-Breiða-sunds-boði, og hinn austasti Skorbeinsbodi. Boði
liggur og austur af Skorbein, skammt frá, og annar
hér um bil ilt viku út-af Skorbein, sem heitir Álboöi.
Enn önnur sker liggja litið eitt út- og austur-af
Ketil-boðafles, inn-af miðri Papeynni, kölluð Máfaflesjar.
Suður-af þeim, skammt frá, er einstakt sker, kallað
Latur. Sundið milli þessa skers og Máfaflesja heitir
Latsund, og inn og norður af Lat, skammt frá
hon-um, er Latsboði. — Kringum sjálfa Papey eru einnig
ýms sker og boðar; innan-fram eyjarinnar liggur
Folcildaboði í Barðaál og Flateyjarboði á
Flateyjar-bót, skammt frá Flatey. Sauðeyjarboði heitir skammt
inn- og vestur-af Sauðey. Håfur heitir sker milli
Arn-areyjar og Hvanneyjar, og þar á sundinu stendur litill,
sivalur klettur upp-yfir sjávarborð. Skammt vestur-af
eynni, rétt fram-undan Selavogi, liggur býsna-stórt
sker, kallað Iðusker, og skammt fyrir austan höfðann
heitir Steinbitsboði. Aðrir 4 boðar liggja út- og
austur-af honum og heitir hinn yzti Kjöggur, hér um bil 3/4
viku frá eynni. Á honum er 10—12 faðma dýpi, en
sextugt allt i kring. Hinir 3 heita Heimaboði,
Miö-bodi og Austurboði. Tvö sker liggja og út-af
austur-höfðanum; heitir það, sem nær liggur, Suarta-sker, og
hitt, sem liggur utar og austar, FlyÖrusker. Út-af
Papey, skammt undan, liggur og eitt sker, kallað
Hådeg-issker. Yzt allra boða og skerja út-af Papey heitir Rif.
Utan-fram sandrifs þess, sem áður er sagt, að liggi
fyrir Suður-Álftafirðinum, eru og nokkur sker, skammt
undan; heita tvö þeirra Skarfakambar, há og
þver-hnýpt, hvort hjá öðru. Rétt undan Óseyjum er og eitt
sker, nefnt Iglsker, og syðst þeirra allra liggur Vigur,

18*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0287.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free