- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
287

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 287 —

Bónda, sem þar stendur yfir uppi. Og þegar kemur
fyrir Yzta-kletts-nef, tekur við víkin og skipaleiðin.
Enn þess má geta, að norðan-megin við skipaleguna
og vestur-af Klemenseyri liggur mjó torfa, grasi vaxin,
fram-með Heimakletti; hún heitir Langa, og er þar
stundum haít fé um tíma, sem flytja á í úteyjar.
Innst fyrir botni hafnarvogsins liggja rennisléttir
sand-ar, og sunnan-megin við voginn liggja innst sléttir
grasfletir, og austur-af þeim svo-kallaður Skipasandur.
Þar er uppsátur stórskipa þeirra allra, sem ganga þar
til fiskiveiða á vetrum, og á bakkanum þar fyrir
ofan stendur kaupstaðurinn og meiri hluti
byggðarinn-ar, sem frá verður skýrt í þeim flokki bókar vorrar,
sem hljóðar um bygging landsins. — Enginn
renn-andi lækur er á Vestmannaeyjum, og það er einhver
hinn lakasti annmarki þeirra, að þar skortir með öllu
neyzluvatn, sem byggðin stendur, og verður [að]
sækja það langar leiðir. Aðal-vatnsbólið er uppi r
Dalnum; þar er fögur og heilnæm vatnslind, er
lik-lega sprettur undan Fiskhellum, en upptök hennar
sjást ekki, því fornmenn hafa hlaðið að henni
grjóts-farveg og þakið yfir með hellum og þykku jarðlagi,
sem nú er grasi vaxið. Geta hálfbognir drengir gengið
þar langt inn-undir, en ekki veit neinn samt með
sannindum, hversu langt bygging þessi nær. Hingað
sækja margir eyjabúar vatn sitt á hestum um
sumar-timann, og kaupstaðarbúarnir árið um kring, og allar
kýr eyjarinnar eru á sumrum reknar þangað einu
sinni á dag. — Annað vatnsból er undir Löngu; þar
drýpur vatn úr kletti í ker, sem undir er sett og sótt
þangað sjóveg í góðu veðri. — í Eysteinsvik, sem
fyr var nefnd, rennur ágætt vatnt út-úr kletti norðan-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0299.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free