- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
297

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 297 —

sundinu millum þeirra tvö sker, sem koma upp um
fjöru, og má róa millum þeirra smábátum. Eyjan er
nokkuð stór ummáls, með háum hömrum að austan,
norðan og vestan, og eru þeir mjög stöllóttir, með
giljum og skútum, og ekki þvergníptir, nema helzt að
austan. Á suðurhliðinni er lágur hamar, og er þar
farið upp. Norðar og vestar en á miðri eynni gnæfir
í loft upp afar-há gnípa, kölluð Hanahöfuð. Hallar út
af því mest að sunnan, og sprettur þar í brekkunni
bæði gras, skarfakál og mikið af Baldurs-brá. Þar
verpir nokkuð af fýlunga, og utan-í hömrunum rillur
og svartfugl. Þar er 8 lamba beit á vetrum.

c. Hrauney. Hún liggur að kalla steinsnari fyrir
norðan Hana, og er viðlíka há og víðast hvar
um-gyrt háum hömrum, sem hæstir eru að sunnan og
lægstir að norðan, sumstaðar hengiflug og sumstaðar
aftur flár og giljagljúfur. Aðal-uppgangan á eyna er
á útnorður-horninu og er hún ekki góð, og á
ofan-verðri eynni eru grjóthryggir með giljum á milli og
framslútandi klettanefjum. Þar sprettur í dældum og
brekkum bæði gras, skarfakál og Baldurs-brá, og
fyrr-um spratt þar hvönn, en nú er nefið hrapað af, sem
hún hafði vaxið á. Þar er bezta fýlungatekja, og
mikill fjöldi af rillum og langvíu verpir þar utan-í
hörnrunum. Þar er og dálitil lundatekja og 9 lamba
beit á vetrum. Hrauney er stærst þeirra smáeyjar
og á sundinu milli hennar og Hana liggur varasamt
blindsker.

d. Grasleysa liggur skammt fyrir vestan
Hrauney. Hún er all-litil ummáls, og álíka há og Hæna,
með þvergníptum hömrum á þrjá vegu, að austan,
sunnan og norðan, svo hvergi verður upp i hana

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0309.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free