- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
301

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 301 —

Á Miðfirði liggja:

Blindskerjagarður fram-af Heggstaðanesi,
vestan-vert við fjörðinn, og er sagt hann nái langt
austur-eftir. Önnur löng blindskerjaröð liggur fram-frá Stapa,
beina leið norður á móts við Krossnes á Vatnsnesi.

Kirkjusker og aðrir fleiri hólmar liggja rétt
fram-undan Illugastöðum. Þar hafði fyrrum verið gott
æð-arvarp, en var komið í mestu órækt og næstum því
liðið undir lok. Nú er það aítur með góðri
hirð-ingu komið í blómgun, svo þar fást í meðalári 20
pd. af dúni og góð von um, það geti enn aukizt
töluvert.

Illugastaðaboðar eru blindskerjaklasi þar
fram-undan.

Tjarnarbodar liggja fram-undan Tjörn á
norð-vestanverðu Vatnsnesi.

Fáskrúð heitir ey, er liggur hér um bil viku
sjávar útnorður-af Vatnsnestöngum. Þar er selveiði
og væri mjög arðsöm, ef hún yrði stunduð; en þess
er lítill kostur, þvi þangað verður sjaldan komizt á
tækri tið, sökum brims og storma. Hún liggur undir
Hamdisvík.

Torfi heitir sker út-af Vatnsnesi, milli
Hamdis-vikur og Krossaness, og liggur undir báðar þær
jarðir. Þar er og selveiði.

Kálfaklettar heita klettar nokkrir eða sker, er
liggja vestanvert við Hamdisvik og halda að henni
þeim megin. Þeir fara undir sjó með flæði og er þar
stundum selveiði, þegar logn ganga.

Langa-sker liggur rétt fram-af Vatnsnesi, skammt
frá landi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0313.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free