- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
300

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 300 —

Drangar. Þeir liggja vestur-útnorður af
Smáeyi-um og 1V2 viku undan Stafnsnesi. Þeir eru 4, en bera
svo hver í annan, að ekki sjást nema 3 úr eyjunum,
og því kalla eyjabúar þá stundum Þrídranga. Þeir
eru litlir ummáls, en býsna háir og graslausir ofan,
og verpa þar einungis nokkrir svartfuglar. Eyjamenn
koma þar aldrei, en Landeyingar róa þangað oft á
vorum og fiska þar, einkum löngur og flyðrur undir
björgunum. Sölvatekja og selveiði við Dranga lá
fyrrum undir Kross i Landeyjum, en hefir nü ekki
verið stunduð um langan aldur. Spölkorn útsuður af
Dröngum liggja stór og flöt blindsker, sem jafnan
brýtur á i brimi. Þau eru þvi varasamari, sem þau
standa hvergi í sjókortum.

Eini-drangur liggur viku sjávar útsuður af
Dröngum og réttar tvær vikur vestur af Stafnsnesi. Það er
einstakur klettur, uppdreginn, að stærð og lögun
lik-astur Geirfuglaskeri, og kring um hann, einkum móti
landnorðri, eru mörg sker, stór og smá. Þangað koma
aldrei islenzk skip, þar eð Eini-drangur liggur ür vegi
fyrir öllum ferðum og fiskiróðrum.

C. EYJAR OG SKER í HÚNAÞING1.

Á Hrútafirði liggja þessar eyjar og helztu sker:

Hrútey, að austanverðu, fram-undan [Hlaðhamri].
Það er stór ey og fögur, grasi gróin, og er þar
all-gott æðarvarp, [16—17] pd. af hreinsuðum dúni i
meðalári. Þar verpa einnig kriur og svartbakar. Hún
liggur undir kirkjuna á Melstað.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0312.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free