- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
317

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 317 —

tveggja ólíklegt, að með því nafni sé átt við alla Austurjökla Eem
heild (Vatnajökul allan) og að Skeiðarárjökull hafi hlaupið
fram. Skeiðarárjökull mun nú nefndur að eins skriðjökull sá,
er gengur ofan frá Vatnajökli milli Eystra-fjalls og Jökulfells
og breiðist út á Skeiðarársand. Knappafell og Knappafellsjökull
er óefað sjálft fjallið, sem nú kallast Öræfajökull.*) „Fellið" var
fyrrum kennt við hnúka tvo, sem eru á því, og standa upp úr
jöklinum og heita Knappar, en jökullinn á „fellinu" var
kennd-ur við það eða (og) bæ þann, er stóð undir því, samnefndan, og
breytti því nafni með honum (Hnappavalla(r) jökull), svo sem
áður var sagt. — 8. 1. a. n. í meginmálinu, „Ulfarsá" o. s. frv.
A með því nafni hefir víst aldrei verið til á þessum slóðum, og
mun þetta nafn sprottið af mislestri á nafninu Virkisá. Sú á
(eða nú ár, vestri og eystri Virkisá) falla hér fram, bar sem
Rauði-lækur var, milli Svínafells og Sandfells; sbr. Fornbrs. I.,
245—47, „Blöndu", I., 44—5, og II., 263—65, og e. :fr. Kr. Kål.,
Isl. Beskr., II., 292—93. Að Virkisá hljóp á Rauða-læk og af tók
tvær kirkjusóknir, að Hofi og Rauða-læk, bendir ótvírætt á, að
þetta gos hafi verið í sjálfum Öræfajökli, eins og Jónas tekur
fram í upphafi greinarinnar, og það áleit Þorv. Thor. einnig,
sbr. Gesch. d. isl. Vulk., ’bls. 106—109. Sbr. e. fr. Afmælisrit til
Kr. Kål., bls. 34—47, og „Blöndu", I., 39—53. Bæði fyrri gosin,
1332 og 1341, virðast einnig hafa verið bar. — Bls. 174. „1638"
o. s. frv. Greinin virðist byggð eingöngu á því, sem er í Árb.
Esp., VI., 88, en óvíst er, á hverju það er byggt. Segir bar, ;xð
vötn öll á Austurlandi hafi fyllzt flóði og borið vikur mjög
mik-ið í sjó út, og Jónas leggur allmikið upp úr því. En þetta er
dá-lítið grunsamleg frásögn, ekki sízt, þegar gætt er að viðbót þess,
er ritaði upp Skarðsár-annál fyrir Brynjolf biskup Sveinsson,
við það, sem staðið hefir við betta ár í frumritinu, sbr. Ann.
1400—1800, I., 253—54: „Þetta sumar sást blóð á sjónum í
Aust-fjörðum sem (í) flekkum eða lengjum af hafinu og að landinu";
sbr. einnig það, sem stendur í Ballarárannál (Ann. 1400—1800,
III., 201) við 1638: „Þá snerust fyrir austan 2 firðir í blóð,
Mjóifjörður og Seyðarfjörður". Það sem stendur um gos þetta
ár í annálum er þetta í sömu viðbót við Skarðsár-annál: „Þá
kom upp eldur fyrir austan um veturinn, á vertíð". Getur sú
viðbót verið á réttum rökum byggð, þótt Björn Jonsson, höf-

*) Át5ur, sjá t. d. 1 Landafræði Gunnl. Oddsens, I., II., 298, Var
litið svo á, aS Öræfajökull væri nafnið á Knappafellsjökli og
Sand-fellsjökli 1 sameiningu. Sjá s. st. um alla þessa jökla, sem ganga út
írá Vatnajökli, bls. 296—98.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0329.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free