Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XVIII —
hafis- og harðinda-ár nyrðra, og síðara árið „stórfellir á peningi
manna; var talið, að þá hefði í Vaðla- og Þingeyjar- og
Múla-sýslum fækkað um 471 nautgrip, 849 hross og 47,087 kindur
frá því, er var árinu áður í sama mund" (Árfann., bls. 223). —
Hér skulu ekki rakin lengra slík örbirgðarár, því að úr þessu
dvaldi Jónas ekki heima á Steinsstöðum á vetrum og varð ekki
á sama hátt og áður að kenna á harðneskju vetrarveðráttunnar.
Því má nærri geta, enda er það fullvel kunnugt, að afkoma
mamia og ævikjör voru ekki með neinum ágætum á bessum
ár-um. Að sjálfsögðu var efnahagur alþýðumanna misjafn, en
jafnvel þeir, sem þóttu vera sæmilega stæðir og hafa gott bú,
urðu oft og einatt að fara margs þess á mis, er mönnum þykir
nú sem þeir geti ekki án verið, einkum er tók til alls þess, sem
að var flutt og kaupa þurfti frá útlöndum, en búið lagði ekki
til sjálft beinlínis né fékkst með vöruskiptum við aðra bænduiv
Um fjölskylduna á Steinsstöðum er það kunnugt, að séra
Hall-grímur var ekki auðugur maður, og var efnahagur ekkjunnar
fremur örðugur, begar hans missti við frá 4 ungum börnum.
Verður síðar vikið að því nánar. Jörðin var að sönnu talin ein
meðal hinna betri jarða í hreppnum (34 hundr.). Hún hafði
áður verið eign Hóla-stóls, en var nú bændaeign, og voru þau
séra Hallgrímur og ekkja hans leiguliðar; landskuld var 1
hundr. og 80 áln.; leigukúgildi 6. Talið hafði verið fyrrum, að
jörðin fóðraði 3 kýr, 70 ær, 40 lömb og 1 hest á gjöf, og að
hafa mætti nokkra sauði og hesta á útigangi;*) séra Hallgrímur
átti fleiri kýr, alls 8 nautgripi, en óvarlegt mun honum hafa
þótt að treysta á útigang á þeim harðindaárum, er nú var sagt
frá. Engjar voru taldar miklar, en sérstök hlunnindi voru engin.
5. ANDLEGUR AÐBÚNAÐUR Á ÆSKUÁRUNUM.
Þá er ástæða til að líta nokkuð á hinn andlega hag manna
hér á landi á uppvaxtarárum bessa manns, er gjörðist einn af
hinum helztu andlegu leiðtogum þjóðar sinnar. En ekki á þó við
að fara mikið út í bá sálma að sinni; nægir að benda á sumt,
sem var, og annað, sem ekki var. En flest er bað svo
alkunn-ugt, að óþarft er að fjölyrða um það í þessu sambandi.
Yfirleitt var alþýða manna góðum andlegum efnum búin
*) Sbr. jaröabök Árna Magnússonar og Páls Vldalíns.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>