Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XXIV —
Nú tók við nýtt líf fyrir litla, föðurlausa drengnum.
Ungur var eg forðum, —
fór eg einn saman
föður sviftur,
er mér fremst unni;
þannig liðu
langir dagar,
meini blandnir
á marga lund.
Hann fór heimanað, og því fór hann einn saman. Eldrí
systkinin, Þorsteinn og Rannveig, voru orðin svo upp-komin, að
þau gátu veitt lið á heimilinu, voru 16 og 14 ára, Anna
Mar-grét var á fyrsta árinu, og því sjálfsagt, að hún væri einnig hjá
móður sinni; en Jónasi litla mátti létta af heimilinu um stund,
os: því bauð Guðrún, systir frú Rannveigar, henni, að hann færi
til sín, upp að Hvassafelli*). Faðir beirra dó 12. Marz 1808,
veturinn eftir að Jónas fæddist, en Guðrún bjó á ættleifð sinni,
var gift Benedikt Björnssyni, og áttu þau 6 börn, sum
uppkom-in og sum ung.
Um haustið, 15. Okt., kom prófasturinn, séra Magnús
Er-lendsson á Hrafnagili, og gerði skrá um eignir dánarbúsins á
Steinsstöðum. Sýslumaðurinn, Gunnlaugur Briem, var
fjárhalds-maður ekkjunnar, og var Þorlákur Hallgrímsson á Skriðu fyrir
hans hönd, en fjárhaldsmaður barnanna var séra Stefán á
Vöil-uni, föðurbróðir þeirra. S’kráin gefur glöggt og nákvæmt yfirlit
yfir efnahaginn, því að allt virðist hafa verið skráð. Fyrst eru
taldar 5 kýr, og til marks um virðingarverð búseignanna skal
þess getið, að kýrnar eru allar saman virtar á 127 dali, 20—30
dali hver, og til samanburðar skal þess e. fr. getið, að þegar
skráð var dánarbú séra Þorsteins í Stærra-Árskógi 1792, voru 2
kýrnar í því búi virtar á 5 dali og 60 sk. hvor og 1 á 4 dali.
— Auk þessara 5 kúa tilheyrðu dánarbúinu á Steinsstöðum 3
aðrir nautgripir, 62 ær (hver virt á 3% dal), 22 lömb, 1
for-ustusauður og 1 hrútur, 1 gamall reiðhestur, 4 klárhestar, 2
hi-yssur og 2 trippi. Skepnur voru allar saman virtar á 559 dali,
en búið allt á 896 dali og 9 sk. Skuldir voru 174 dalir og 9 sk.,
aðallega verzlunarskuldir við 3 kaupmenn á Akureyri. Til skipta
komu 693 dalir og 42 sk., og varð erfðahluti hvorsbræðrannaum
115 dalir. Fóru skipti fram 15. Des. 1817. Jónasi var útlagt m. a.
1 kýr og 7 ær, sauðurinn, hrúturinn, sem hann hafði eignað sér,
og eldri hryssan, fatnaður, sængurfatnaður, skápur og skatthol.
Meðal eigna dánax-búsins voru taldar bækur séra Hallgríms,
og er ástæða til að kynna sér lítils háttar þann bókakost. Fyrst
eru taldar þessar guðsorðabækur íslenzkar: Þorláks-biblía, í 2
*) Sjá LýS, II., 23.
’l
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>