- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XXVI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XXVI —

skóla á vetrum, þar til hann fór suður til Bessastaða (sbr. Lýð,
II., 23). Ekki er Jónas talinn meðal heimafólks á Steinsstöðum
í sálnaregistri Bakka-sóknar frá 1817, en í sálnaregistri
Mikla-garðs-sóknar frá því í Apríl 1819 er hann talinn í Hvassafelli
(sem tökubarn, 12 ára, en var bá raunar á 12. ári). í
sálna-registri Bakkasóknar frá 1820 er hann ekki heldur talinn á
Steinsstöðum, en í sálnaregistri sömu sóknar næsta ár, í Marz, er
hann talinn þar, — „vel lesandi"; Anna litla, systir hans, er þá
5 ára og „stafar vel". Má marka nokkuð af því, hve nær hann
muni hafa farið að læra að lesa sjálfur. Hann virðist eftir
þess-um bókum hafa verið um 4 ár i Hvassafelli, frá því 1816 um
haustið og til ársins (sennilega haustsins) 1820. Vorið 1821, 5.
sunnudag eftir páska, 27. Mai, var hann fermdur. Hann var þá
eina fermingarbarnið i Bakka-sókn, en sama dag voru fermd 2
börn i Bægisár-sókn; hafa þau þvi sennilega verið fermd i
Bæg-isár-kirkju öll. Þá var þar orðinn prestur séra Sigurður
Sigurðs-son, sem séra Jón hafði ráðið til sin sem aðstoðarprest 1803,
þótt ekki yrði af því, að hann færi þangað þá. Hann var síðar
prestur á Reynivöllum og loks á Auðkúlu. — Við nafn Jónasar
hefir hann skrifað i kirkjubók Bægisársóknar, er hann fermdi
hann: „Dável uppfræddur", og i kirkjubók Bakka-sóknar: „Vel
að sér". — Við húsvitjun á Steinsstöðum næstu tvö ár, í Mai
1822 og i Febrúar 1823, er Jónas talinn þar; fyrra árið „dável
læs, „góður unglingur" og „vel þenkjandi", og síðara árið „vel
læs" og „skarpur unglingur". Þá var hann 15 ára. — Þorsteinn
var 22 ára og Rannveig 20, og var hún nú gift Tómasi
Ás-mundssyni, er verið hafði „fyrirvinna", eins og þá var kallað,
hjá móður hennar, en Hallgrimur, er hér hefir verið getið áður,
sonur Tómasar og Rannveigar, var á 1. ári. Bjuggu þau á
Steins-stöðum einnig; eru taldir 8 heimilismenn hjá frú Rannveigu
(10 venjul. áður) og 6 hjá ungu hjónunum. Bækur á heimilinu
eru þær guðsorðabækur, er skrásettar voru eftir fráfall céra
Hallgríms, og nokkrar fleiri þess háttar.

Af kirkjubókum þessum og húsvitjunum verður ekki annað
séð, en að Jónas hafi verið heima á Steinsstöðum veturinn 1820
—21, síðasta veturinn áður en hann var fermdur. Verður þetta
ekki vel samrímt þvi, sem haft er eftir Hallgrimi, systursyni
hans, að Jónas hafi verið settur til mennta 11 vetra gamall hjá
séra Einari Thorlaciusi í Goðdölum og lært hjá honum undir
skóla á vetrum Jiar til hann fór suður til Bessastaða. Hann varð
11 ára haustið 1818, en i April næsta vor er hann í Hvassafelli.
Eru því likur til, að hann hafi verið þar þann vetur, eins og
2 næstu vetur á undan, en séra Einar var að vísu í Goðdölum

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free