Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XXVII —
þennan vetur, 1818—19. Jónas kynni að hafa verið þar hjá
hon-um næsta vetur á eftir; frá þeim vetri er ekki til neitt
sálnareg-istur frá Miklagarðs-sókn, og ekki hefir hann verið á
Steins-stöðum þann vetur. Veturinn 1820—21 virðist Jónas helzt hafa
verið þar, og húsvitjanirnar frá 1822 og 1823 benda til, að hann
hafi einnig verið þar næstu tvo vetur (að minnsta kosti síðasta
veturinn), en þá vetur var séra Einar síðasta í Goðdölum; íór
þaðan um vorið 1823, sama ár, sem Jónas fór suður til
Bessa-staða um haustið. Þó er það alveg rétt, að Jónas hafi lært
undir skóla hjá séra Einari, enda segir Konráð Gislason það
hiklaust í æviminningu Jónasar í Fjölni, IX., 1. Hann tekur það
fram þar, að móðir Jónasar hafi komið honum í heimaskóla hjá
séra Einari og að hann hafi verið hjá honum í Goðdölum „tvo
vetur, þangað til hann fékk hálfa ölmusu og komst í
Bessa-staða-skóla 1823". Kemur þetta heim við skólavitnisburð
Jón-asar, að móðir hans hafi látið kenna honum undir skóla, enda
kann Konráð að hafa farið í þessu efni eftir því, sem þar stóð,
en það kemur jafnframt heim við kirkjubækurnar og
sálnareg-istrin, sem nú var greint, að móðir Jónasar, fremur en Guðrún,
móðursystir hans, hafi komið honum til séra Einars, þar sem
hann virðist hafa verið farinn frá Hvassafelli ári áður en hann
eftir þessu ætti að hafa farið að læra undir skóla. Húsvitjunin
frá 1822 er frá þvi i Mai, og hefir Jónas því getað verið kominn
heim frá Goðdölum, þótt hann hafi verið þar um veturinn.
Hús-vitjunin næsta ár er þar á móti gerð í Febrúar og bendir hún
helzt til, að Jónas hafi verið heima þann vetur eða ekki allan
veturinn i Goðdölum, — sé það þá rétt, að hann hafi verið
heima á Steinsstöðum. — En að séra Einar hafi kennt Jónasi
undir skóla, það er ut af fyrir sig víst og mjög svo eðlilegt.
Séra Einar og faðir Jónasar voru systkinasynir og fóstbræður,
er séra Einar var barn. Sighvatur Grimsson segir svo frá séra
Einari í Prestaæfum sínum: ,,Hann var mikill gáfu- og
lærdóms-maður, og afbragðs-prédikari; vel auðugur að löndum og
laus-um aurum. Hann var lærður vel og menntaði marga pilta undir
skóla, rétt góður búmaður, viðkunnanlegur í umgengni, einn
hinn liprasti gáfumaður og yfir höfuð að tala mikið prúðmenni
og snillingur". Enn fremur segir Sighvatur: Séra E’nar
Thorlacius var talinn einn hinn lærðasti maður norðanlands um sina
tíð; mun vart nokkur sú vísindagrein, er hann ekki bæri
nokk-uð skynbragð á. Latínumaður var hann mikill og latínuskáld
ágætt, ef til vill hinn einasti hér á landi, er kunni mennt þessa
til hlitar, og ef til vill hið síðasta latinuskáld hér á landi, að
fráteknum mag. Benedikt Gröndal. Griska, enska, þýzka,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>