Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XXXII —
þeir voru í hans skólatíð, um 20 árum síðar en Jónas var í
skóla; þegar Jónas gekk inn, var lektor 46 ára, Scheving 42,
Björn 35 og Sveinbjörn 32. Mun mega gera ráð fyrir, að
sam-bandið á milli kennara og pilta hafi þá verið að sumu leyti
með nokkuð öðrum hætti en 20 árum síðar, vegna aldurs
kenn-aranna, auk margs, sem breytzt hafði á þeim árum og hafði í
för með sér breyting á mönnum; ,,tímai-nir breytast og
menn-irnir með".
Þeir, sem gengu inn haustið 1823 með Jónasi, voru þessir:
1. Lárus Sigurðsson, hinn orðlagði gáfumaður; hann var settur
í 2. bekk þegar næsta haust og útskrifaður 2 árum á undan
Jónasi, vorið 1827; sjá um hann enn fremur I. b., bls. 47, 4. er.,
með aths. — 2. Búi Jonsson, sjá I. b., bls. 154, 3. er., með aths.
— 3. Benedikt S’cheving, sjá s. st., 1. er., með aths. — 4.
Stef-án Eiríksson; sjá um hann II. b., bls. 3—4, með aths. —
5. Bjarni Jonsson (Johnsen), útskrifaður 1828; síðar rektor. •—
6. Jens Benedictsson; hætti námi; varð síðar stórkaupmaður;
(d. 1842).*) — Haustið áður hafði Baldvin Einarsson gengið
inn, en var nú settur í 2. bekk og útskrifaður 1826. Haustið
þar áður, 1821, hafði Stefán Gunnlaugsson (Gunnlögsen)
gengið inn og var nú einnig settur í 2. bekk. En auk þeirra
Jónasar, er gengu inn haustið 1823, voru 10 piltar fyrir í
1. bekk, þar á meðal Ásmundur, sonur Jóns lektors, Snorri
Sæ-mundsson frá Utskálum, og varð Jónas sessunautur hans, Geir
Jonsson Bachmann og Daníel Jonsson frá Litla-Dal. En af
þeim, sem gengu inn meðan Jónas var í skóla, skulu nefndir
að eins þessir: 1824 þeir Kristján Kristjánsson, útskrifaður
1826, Pétur Pétursson og Tómas Sæmundsson, báðir
útskrif-aðir 1827, Brynjólfur Pétursson, útskrifaður 1828, Gisli
ís-leifsson (Einarsen), útskrifaður 1830, og enn fremur Magnús
Eiríksson, útskrifaður um leið og Jónas, 1829; 1825 gekk Jón
Hjaltalin inn, útskrifaður 1830; 1826 Konráð Gislason,
útskrif-aður 1831; 1827 Skapti Timoteus Stefánsson, útskrifaður 1832,
sjá I. b., bls. 45—48, með aths.; 1828 þeir Páll Melsted og Jón
Halldórsson, útskrifaðir 1834. í bréfum sínum til Tómasar
Sæ-mundssonar, sjá II. b., bls. 3—9, með aths., nefnir Jónas ýmsa
af skólabræðrum sinum.
Námsferil Jónasar í skólanum ætti að mega sjá nokkuð af
*) Um afkomendur hans sjá. Þ. Thor., Æfis. P. Péturssonar,
bls. 312—15.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>