Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XLV —
hans, seg-ir, að hann hafi verið „afbragðs lögreglustjóri", og að
sér hafi fallið vel að vera hjá honum.*)
Þegar Tómas fékk bréfið, sem Jónas sendi honum frá
Reykjavik 1. Marz, fylltist hann sárri gremju yfir fyrirætlunum
vinar sins. Hann skrifaði honum aftur 23. n. m. (Bréf T. Sæm.,
49—53) og kemst þá m. a. svo að orði um þetta: „Illa likar mér,
vinur, að þú ert vonlaus um að geta komið hingað í haust og
kann ske orðið mér samferða.**) Að eyða beztu tíð sinni hjá
öðrum eins dóna og Ulstrup, sem ekki veit orð í sinn haus! Guð
hjálpi mér! Þú segist vera neyddur til, en ætli þú leggir mikið
upp i 2 eða 3 ár í Rvík, ætli þitt höfuð tæmist þar ekki eins og
vasinn fyllist? Að ganga á kontór er gott fyrir einn stúdent,
sem ekki ætlar sér að halda víðara".
En nú varð svo að vera sem komið var. — „Kann ske komi
ég líka einhvern tíma að finna þig", hafði Jónas skrifað Tómasi,
og hvorugur sleppti voninni um það.
Reykjavik var enginn stórbær á þessum árum. Til er
niann-tal frá árslokum 1828 og annað frá haustinu 1832; í hinu fyrra
eru taldar 534 sálir í bænum og í hinu síðara 559. Heimilin í
bænum voru um 90. Kaupmenn og verzlunarstjórar um 10,
iðn-aðarmenn um 5 og embættismenn þeir þrír, stiftamtmaðurinn
(Krieger), land- og bæjar-fógetinn og sýslumaðurinn (01.
Fin-sen) ; og svo var 1 lögregluþjónn eða 2, 1 hafnsögumaður og 1
barnalcennari. — Aðrir embættismenn bjuggu utanbæjar,
Stein-grímur biskup inni í Laugarnesi, Magnús Stephensen
yfirdóms-forseti úti í Viðey, Bjarni Thorarensen yfirdómari á Gufunesi,
Isleifur Einarsson á Brekku á Alftanesi, séra Gunnlaugur
Odds-son á Lambastöðum, Jón Thorstensen landlæknir i Nesi, o. s. frv.
— Húsin í Reykjavik voru nær öll við 2—3 götur, Aðalstræti
(„Klúbbgötuna"), Hafnarstræti (Strandg.) og Austurstræti
(Löngustétt). Allmörg stóðu öldina út, og sum þeirra standa
ennþá. I ritum drs. Jóns Helgasonar biskups, Reykjavik 14 vetra
(Safn V., nr. 2) og Klemens Jónssonar ráðherra, Sögu
Reykja-víkur, einkum 3. kafla,***) eru skýrslur og lýsingar um
Reykjavik á þessu tímabili, og til eru uppdrættir og myndir, sumar
út-gefnar i þessum 2 ritum, er sýna fyrirkomulag húsanna og útlit,
götulif, búning bæjarmanna o. fl., sjá t. d.
Reykjavíkur-mynd-irnar, sem fylgdu ferðabók Pauls Gaimards; ein þeirra, sem
*) Endurminn., bls. 45.
**) Hann ætlaöi að skreppa heim um sumariö.
***) Sbr. einnig- Endurminningar Páls Melsteds, Ivh. 1912, bls.
21—24.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>