Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
XLIV —
maður, þitt athvarf? Vissulega ekki hjá heiminum". Þeir, sem
þekkja hann, þeir munu skilja hann; og þeir munu einnig sjá,
að hann lifði sínu skamma lífi samkvæmt þeim kenningum, sem
hann setti fram í þessari ræðu sinni.
Biskup, Steingrímur Jonsson í Laugarnesi, skrifaði upp á
burtfararvottorðið 1. Júlí, að hann hefði séð það, og veitti
Jón-asi sama dag prédikunarleyfi (veniam concionandi), ,,til að
pré-dika og chatechisera opinberlega fyrir söfnuðinum, innan þeirra
sókna, hvar hann sér uppi heldur" o. s. frv. —
Bessastaða-stúdentar voru undir það búnir að verða prestar, eins og
kunn-ugt er.
IV.
REYKJAVÍKUR-ÁRIN FYRRI.
Nú tók við nýtt líf að skólaárunum loknum. Nú hélt hann
ekki um fjöll og óbyggðir heim til átthaganna norður í Öxnadal.
Hann fór til Reykjavíkur, ráðinn skrifari hjá land- og
bæjarfó-getanum þar, Ulstrup, eins og hann hafði búizt við. — Sigurður
Thorgrímsen, sem verið hafði landfógeti frá 1812 og
bæjarfó-geti frá 1813, hafði fengið lausn frá þeim embættum sumarið
áður, en Regner Christopher Ulstrup verið settur til að gegna
þeim. Hann var aldanskur maður, fæddur 1798, hafði verið
her-foringi í stórskotaliðinu, en slasast eitthvað*) og tekið síðan
próf í dönskum lögum 1818 og verið að nafninu til sýslumaður í
Skaftafellssýslu 1820—25, en verið þar í héraði að eins fyrri
hluta árs 1822, annars utanlands. Hann var kvæntur; kona hans
var Hedevig Lovise Augusta, f. Lerche; giftust þau rétt áður en
þau fóru hingað sumarið 1828. Þau settust að í Petræusarhúsi
svo-nefndu,**) er síðar nefndist Velta, en 1830 keypti stjórnin
Bergmannshús sem landfógetabústað.***) Stóðu þessi hús bæði
fram yfir síðustu aldamót; mun Jónas hafa átt heima í þeim hjá
Ulstrup á þessum fyrri árum sinum i Reykjavik. — Bogi
Benediktssön segir í Sýslumannaæfum (IV., 667), að Ulstrup hafi
verið „stór, kempulegur og laglegur maður, og hreinskilinn i
reikningum". Páll Melsted sagnfræðingur, sem var á skrifstofu
*) Endurminn. Páls Melsteds, bls. 48.
**) Sjá um þaS Safn V., nr. 2, 54.
***) S. st., bls. C6—69, og Sögu Reykjavíkur, I., 172—73.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>