Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— LVIII —
og ekki verður það heldur séð á neinu eftir Jónas eða um hann
frá samtíð hans. — Enn fremur er sagt sama staðar, að hann hafi
(þá) gjörzt mikill mótstöðumaður rímnanna og hent gaman að
þeim, eins og sjá megi af erindinu „Vona eg dúna dreka lin" o.
s. frv. Það erindi mun hann þó hafa ort síðar, og verður nú ekki
á neinn hátt séð, hvern hug hann hafði á rímum fyrri árin sín
í Reykjavik.
Þegar leið að brottferð í Agúst-mánuði, fékk hann
fjárhags-vottorð frá stiftamtmanni, og hnýtti Krieger vinsamlegum
með-mælum við (sjá fylgiskjal 2). Einnig gaf landfógeti honum
vott-orð um iðni hans og reglusemi, og tók hann fram um leið, hversu
góðar vonir mætti gera sér um framfarir hans á
menntabraut-inni vegna lærdóms hans, ágætra gáfna og lærdómslystar
(fylg’i-skjal 3). — Loks rann brottfarardagurinn upp, 23. Agúst. Hann
kvaddi kunningja og vini árla morguns, meðal þeirra Lárus
Sigurðsson, „á bana-bólstur hniginn, líki líkan" (sbr. I. b., bls.
46, með aths., og Endurrn. P. M., bls. 51), og hafði það djúp og
ógleymanleg áhrif á hann. Lárus hafði komið heim um vorið,
dauðvona af brjóstveiki. — Kl. 7 um morguninn fór Jónas „um
borð á Galeasen Christine Marie, ásamt eiganda skipsins,
kaup-manni P. J. Petersen". Jónas gerði dagbók um ferðina (sjá II. b.,
bls. 215—19) allt til og með 4. Sept.; þá voru þeir komnir í nánd
við Hjaltland, en óvíst er, hve nær þeir komu til Hafnar; það
mun hafa verið um 10. Sept. — Það er m. a. einkennilegt við
dagbókina, hversu annt höfundurinn lætur sér að geta um fáséð
dýr og ýms náttúrufyrii’brigði, og lýsa eyjunum, sem skipið
sigldi fram hjá. Hitt virðist einnig einkennilegt, að þegar honum
fer að batna sjóveikin, eftir 8 daga sjóvolk, þá verður honum
fagurt ljóð á munni; hann hugsar heim til Fróns og biður
haf-rænuna færa sér þaðan koss frá dalanna dætrum. — Það e^
hæg-ara að sjá, að sá, sem hér er á ferð, sé náttúrufræðingsefni og
skáld en að hann sé landfógetaritari, sem ætli að fara að leggja
stund á laganám.
V.
HAFNARÁRIN FYRRI.
Þegar Jónas kom til Hafnar, voru þar fyrir skólabræður hans
nokkrir og vinir, svo sem Gísli ísleifsson frá Brekku,
Víðivalla-bræður, Pétur og Brynjólfur Péturssynir, Bjarni Jonsson frá
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>