- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
LXXXIII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— LXXXIII —

bls. 6). — En það tókst illa til með útgáfu IV. árg. Séra Tómas
ætlaði að senda í byrjun Apríl-mánaðar m. a. eftirmæli ársins
1837, en póstskipið beið þá ekki komu landpóstsins að austan,
svo að greinar hans og bréf til Konráðs og Jónasar komust ekki
af stað fyr en einhvern tíma í Mai. Varð þetta til þess, að útgáfu
árgangsins var frestað til- næsta árs. Þótti séra Tómasi það
ástæðulítið, skrifaði Jónasi óþægilegt bréf (9. Ág.), og vildi
slíta félagsskap við þá þrimenningana í Höfn, enda hafði hann
verið óánægður með aðgerðir þeirra og aðgerðaleysi áður (Bréf
T. Sæm., bls. 225—248). Vildi hann, að beir ættu einir IV. árg.,
og létu í hann eftirmælin, ef þeir vildu, en kvaðst sjálfur vilja
eiga og útgefa V. árg. einn. — Þeir settu þó einnig fremst í IV.
árg. formála, sem hann hafði sent þeim haustið 1837, og höfðu
nafn hans sem áður á titilblaðinu. — Sunnanpósturinn, sem
kom-ið hafði út 1835 og ’36, kom ekki 1837, og var talinn dauður, en
hann raknaði við aftur og lifði þetta árið út, 1838.

En séra Tómas minntist einnig á annað í bréfi sínu til
Jón-asar, sem gerði hann graman, og sömuleiðis urðu ummæli séra
Tómasar um Jónas í því sambandi til þess: „Mig rak hreint í
stanz, er ég af hendingu á dögunum fékk í Laugarnesi þær
fregnir, að þú hefðir ætlað að sækja um Helgafell,*) og rétt var
það samkvæmt seinlæti þínu og slysni, að koma upp með þetta
svo sem deginum eftir að búið var að troða því út; * *) það lá
við, að þetta, eitthvert bezta brauð landsins og skemmtilegasta,
yrði skikkunarbrauð núna af staklegri tilviljun, og enginn efi
var á, að þú hefðir fengið það, ef þú aðeins hefðir innt í þann
veg. Mér þótti það mikið illt, að andlega stéttin skyldi missa
þig svona, úr því þér var farið að koma til hugar að ganga inn
í hana hvort sem var". — Jónasi sárnaði bæði betta og fleira í
bréfi vinar sins, sem sjálfur var sárgramur einnig og
viðkvæm-ur fyrir framtið Jónasar. Hefði nú verið æskilegra fyrir báða
að geta hitzt og talazt við um óánægjuefnin. Þvi Jónas varð
meira en lítið angurvær, og sendi séra Tómasi í byrjun næsta
árs bréf, sem honum féll mjög bungt, svo sem sjá má af svari
hans til Jónasar aftur, dags. 1. Febr. 1839 (Bréf T. Sæm., bls.
248—56). Verður ekki farið hér nánar út í þessa sundurþykkju
þeirra vinanna, og það því siður, sem bréf Jónasar er nú ekki

*) Séra Pétur Pétursson var þar prestur í 1 ár, 1837—38, en
haföi fengið veitingu fyrir Sta’SarstaS, þegar Jónas var heima, 26.
Ág„ og- flutti þangaS vorið 1838.

**) Séra Jóni GuSmundssyni, aSstoSarpresti, vpr veitt
Helga-fell 19. Mai 1838.

6*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0095.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free