- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XC

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XC —

„Þið þekkið fold með blíðri brá", o. s. frv. Erindið er 8 litlar
línur; í 6 er bent á allt hið aðdáanlegasta, fegursta og
stórfeng-legasta á Fróni og í hinum tveim eru blessunaróskir. Bæði
erind-in, þetta og hið fyrsta af kvæðinu til séra Þorgeirs, hafa verið
sungin mikið allt til þessa dags, enda eru bau ort undir mjög
fallegum lögum, en með ættjarðarkvæðið hefir jþó ekki verið íarið
sem skyldi, því að það hefði átt — og ætti — að vera bjóðsöngur
vor. Að vísu munu upphafsorðin ekki hafa þótt eiga jafnvel við
ætíð, en hefði þá ekki verið afsakanlegt að segja: „Vér elskum
fold" o. s. frv.?

Þessi tvö kvæði hefir Jónas sennilega verið beðinn um fyrir
þetta tækifæri. En hann orti eitt enn, til veizlufagnaðar að
lok-inni hátíðlegri máltíð, dálítinn „borðsálm", eins og hann kallaði
þetta (sjá I. b., bls. 162—64); það var „gaman og alvara" um
þjóðmál og þjóðarlesti heima fyrir.

Síðasta vetrardag, tveim dögum eftir síðari fundinn í
Bók-menntafélaginu, skrifaði Jónas að nýju bréf það eða umsókn,
sem hann hafði ritað og ætlað að senda fjármálastjórninni
vor-ið áður, svo sem getið var hér að framan. Breytti hann nú
um-sókninni sem sjá má (í II. b., bls. 20—22), fór ekki fram á styrk
til fiskveiðarannsókna, heldur bauðst nú til að leggja íram
krafta sína til náttúrufræðislegra rannsókna á íslandi, bæði
dýrafræðislegra og jarðfræðislegra, ef stjórnin ætlaði að låta
framkvæma þar einhverjar slíkar rannsóknir, en sérstaklega
benti hann á hina fyrirhuguðu landlýsingu Bókmenntafélagsins,
og hversu mikils um vert það gæti orðið fyrir sig, sem hefði
verið falið að semja hana, að geta skoðað sem mest af landinu
með eigin augum.

C. J. Gerss, stórkaupmaður í Höfn, hafði sótt um það til
fjármálastjórnarinnar 3. Dec. um veturinn, fyrir hönd ensks
verzlunarhúss í Lundúnum, Brandram Brothers & Co., að það
mætti leita að brennisteini og fleiri jarðefnum (kolum, nafta og
saltpétri) á íslandi, og síðan starfrækja þar nám þeirra í 25 ár,
mætti flytja þangað vélar og matvæli handa verkafólki og
það-an hin umræddu jarðefni, unnin og óunnin.*) — Brennisteinn
fór hækkandi í verði vegna breytinga á námurekstrinum á
Sikil-ey. — Stjórnin leitaði álits Georgs Forchhammers 15. s. m. og
lét hann það í ljósi 2. Jan. n. á.; áleit að veita mætti leyfið með
vissum skilyrðum, sem hann nefndi.*) Verzlunarhúsið Ørum &
Wulff í Höfn hafði brennisteinsnámana í Þingeyjarsýslu á leigu.
Var það einn af leiguskilmálunum, að það skyldi ekki flytja

*) Sbr. Lovsaml. f. Isl., XI., 365.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0102.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free