- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XCI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XCI —

neinn brennistein til annara landa en Danmarkar. Nú sótti það,
16. Jan., um undanþágu frá þessu; kvaðst myndi fá betra verð
í öðrum löndum. Fjármálastjórnin sendi nú ’báðar umsóknirnar
til ríkisskuldastjórnarinnar 2. Febr. og óskaði álits hennar, því
að til hennar greiddu beir Ørum & Wulff afgjald sitt, 100 dali
á ári. Hún svaraði loks 12. Apríl og taldi það ekki ráðlegt að
svo stöddu, að veita enska verzlunarhúsinu hin umbeðnu
rétt-indi, en réði til, að leitað yrði samkomulags við Ørum & Wulff
um nýjan samning, hærra afgjald og frjálsari sölu, og að
nátt-úrufróðum manni yrði falið að rannsaka, hvort til sé á íslandi
svo mikið af nokkrum öðrum nýtum jarðefnum en brennisteini,
að ætla mætti, að þau gætu orðið til hagsmuna fyrir ríkið. Þetta
ráð mun brátt hafa verið borið undir Georg Forchhammer og
fleiri, og mælzt vel fyrir. Virðist það hafi þá þegar verið ráðið,
að senda 2 menn til rannsókna til íslands, og sömuleiðis, hverir
það skyldu vera.*) Er ekki ósennilegt, að Brynjólfur
Péturs-son, sem var starfandi hjá fjármálastjórninni, hafi gefið
Jón-asi bending um, hvað í ráði var, og að þetta hafi ýtt undir hann
að senda tilboð sitt. Daginn áður en hann sendi það, 23. Apríl,
ritaði Gerss fjármálastjórninni að nýju og skýrði henni frá, að
þeir Brandram hefðu hætt við áform sín, en nokkrir aðrir
eng-lendingar hefðu í þeirra stað tekið þetta mál að sér, og
endur-nýjaði Gerss nú umsóknina fyrir þeirra hönd. Svaraði stjórnin
honum nú loks 30. s. m. og kvað ekki unnt að sinna umsókninni
að þvi, er snerti brennisteinsframleiðslu á Islandi, en
hlutaðeig-andi stjórnarvöldum yrði skrifað um hinar fyrirhuguðu
rann-sóknir, þar eð ekkert væri við það að athuga, að bær yrðu
fram-kvæmdar.**) — Gerss skrifaði nú englendingunum um þessar
undirtektir og kvaðst siðan, 29. Mai, ætla að halda sem fyrst íil
íslands, upp til Eyrarbakka, þegar er hann gæti fengið hin
um-getnu bréf til stjórnarvaldanna á Islandi með sér.
Fjármála-stjórnin skrifaði þá stiftamtmanni og amtmanni næsta dag og
bað þá greiða götu hans. Mun lítið hafa orðið úr framkvæmdum
Gerss, og er hann úr sögunni. En 7. Mai réði fjármálastjórnin
konungi til að låta fyrst 2 menn fara til íslands og rannsaka,
hversu hagaði þar til í þessum efnum, áður en farið yrði að
veita englendingunum leyfi til að stunda þar námugröft, svo sem
þeir höfðu sótt um. Til þeirra rannsókna benti hún á þá cand.
polytechn. Chr. Schythe og Japetus Steenstrup, sem stundaði
náttúrufræðisnám við háskólann og var þá þegar i miklu áliti hjá

*) Sbr. Lovsaml. f. Isl., XII., 94.

**) Lovsaml. f. Isl., XI., 351.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0103.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free