- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XCIII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XCIII —

Þeir Schythe og Steenstrup urðu síðbúnir, þótt ekki þyrftu
þeir að bíða eftir nægu ferðafé. Skal það mál ekki rakið hér,
enda hefir það verið gert í Landfrs., IV., 23.*) Þeir voru ekki
komnir til Reykjavikur fyr en 27. Júlí. Þaðan áttu beir eftir
ferðaáætlun og erindisbréfi Forchhammers að fara um
Þing-velli norður til brennisteinsnámanna, en þótti of áliðið sumars
til þess, fóru að skoða sig um í nágrenninu og ferðuðust síðan
austur í Skaftafellssýslu. Jónas var þá dagana við rannsóknir
•sínar í Þingeyjarsýslu og hafði lokið við brennisteinsnámana.
Hefðu þeir Schythe og Steenstrup farið tafarlaust norður
þang-að, bá hefðu þeir getað skoðað námana og notið aðstoðar
Jón-asar, sem var þá orðinn þeim svo kunnugur. Sjálfur hafði hann
gert svo ráð fyrir, að þessum ferðum gæti orðið hagað þannig,
sjá III. b., bls. 79. En að vísu var engin þörf á því, að þeir
dan-irnir færu að rannsaka námana; Jónas var fær um að gera það
eins vel einn. Aðaltilgangur stjórnarinnar með að senda þá
danina til íslands hafði þó raunar verið sá, að beir
íram-kvæmdu þær rannsóknir. Schythe komst þá loks einnig að
nám-unum siðla sumars næsta ár, en litlar sögur fara af
rannsókn-um hans þar; en Steenstrup fór það sumar vestur á land, og
Tsáðir fóru þeir utan þá um haustið.

Þess var áður getið, að Jónas hefði skrifað Jóni
biskups-skrifara að sækja um gott brauð fyrir sig, ef losnaði. Nú varð
Reykholt laust við hið sorglega fráfall séra Þorsteins
Helga-sonar (sbr. I. b., bls. 102—4, m. aths.), og sótti Jón um það fyrir
Jónas 30. Mai, meðan hann var á heimleið. Vitnaði Jón í
vott-orð þau, sem hann lét fylgja umsókninni, og til kunnugleika
b>iskups allt frá skólaveru Jónasar á Bessastöðum. Umsögn
bisk-ups næsta dag um umsóknina og umsækjandann, Jónas, er mjög
merkilegur dómur um lærdóm hans og hæfileika, og þeim mun
merkilegri, sem hann er skrifaður af einum hinna lærðustu og
gáfuðustu manna, sem þjóðin átti þá, Steingrími Jónssyni; sjá
fskj. 11. Umsækjendur voru 11 og þeirra á meðal skólavinur
Jónasar, Gisli isleifsson (Einarsen), sem nú bjó á eignarjörð
sinni, Selalæk; en brauðið var veitt prestaöldungnum séra
Jón-asi Jónssyni á Höfða, sem nú var rúmlega hálfsjötugur maður
og hafði tekið vigslu 10 árum áður en nafni hans fæddist á
Hrauni. — En séra Jónas var samt ekki alveg kominn á
grafar-bakkann enn, þvi að hann var prestur í Reykholti í 13 ár og

*) Sbr. einnig Lovsaml. f. Isl., XII., 23—24, og Th.
Thoroddsen, Japetus Steenstrups Rejser og Undersøgelser paa Island, Kh.
1913. bls. 4—5.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0105.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free