Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XCIV —
lifði þar enn 9 ár eftir það; dó 1861 (sbr. enn fremur II. b.,
bls. 123—24, m. aths.).
VI.
REYKJAVÍKUR-ÁRIN SÍÐARl.
Heimferð Jónasar frá Höfn til Akureyrar tók fulla 25 daga r
hann sté á land 18. Júní og fór begar daginn eftir heim að
Steinsstöðum. Hann dvaldi þar í 3 daga, en fór síðan aftur inn
á Akureyri og þaðan inn í fjörð, að heimsækja frændur sina,
Hallgrím prófast Thorlacius á Hrafnagili og séra Einar,
bróð-ur hans, í Saurbæ, sinn gamla kennara, og enn fremur Þorstein,
bróður sinn, sem nú var farinn að búa á Hvdssafelli. Næstu
daga gerði hann ýmsar athuganir (sbr. dagb., III. b., bls. 71—
77) og kom aftur til Akureyrar 28. Júní. Daginn eftir fór hann
neim að Steinsstöðum aftur og beið bar eftir ’bréfum (o. fl.)
frá Höfn um ferð þeirra Schythe og Steenstrups; var von á
her-skipinu Herthu, og er Jónas frétti, að það væri komið til
Akureyrar, fór hann þangað aftur, 3. Júlí. Virðist undarlegt, að þeir
Schythe og Steenstrup skyldu ekki fara þangað með bví skipi;
ekkert orð fékk Jónas heldur frá þeim, en að eins óglöggar
fregnir. Akvað hann nú að bíða eftir þeim nokkra daga enn, og
fór heim aftur 6. Júli, en hinn 10. lagði hann af stað áleiðis til
brennisteinsnámanna; hann fór sér hægt, því að margt var að
athuga, bæði náttúruminjar og fornminjar. Að kvöldi næsta
dag kom hann til Akureyrar, og þá skrifaði hann Konráði þar
gamanbréfið, sem er í II. b., bls. 23—24. Hann kom til
Húsa-víkur 15. Júlí og skoðaði þar brennisteinshreinsunina, skrapp
þaðan út á Tjörnes hinn 16. til að rannsaka
Hallbjarnarstaða-kamb, en sá brátt, að þar var meira verkefni fyrir hendi en
svo, að hann gæti sinnt því í það skipti. Hinn 18. Júlí fór hann
svo upp að Reykjahlíð og settist þar að, en þegar næsta dag
fór hann til námanna, og séra Jón Þorsteinsson með honum.
Dagbókin nær því miður ekki lengra, en lýsing Jónasar á
nám-unum er að finna í brennisteinsriti hans í IV. b., bls. 8 o. áfr.
Hann lýsir þeim og landslaginu umhverfis mjög vel og
fróð-lega; einkum er kafli (á bls. 22) í lýsingunni á leiðinni iil
Fremri-náma framúrskarandi fallegur. Hann segir í
dagbók-inni frá 19. Júli og bréfi til F. M., að hann hafi þann dag
skoð-að Víti, og þá hefir hann liklega gert erindin um bað (I. b., bls.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>